Á döfinni

HönnunnarMars 2010

HönnunarMars í Þjóðminjasafni Íslands

Dagana 18. - 21. mars stendur Hönnunarmiðstöð íslands öðru sinni fyrir HönnunarMars sem er fjögurra daga hátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Þjóðminjasafn Íslands tekur þátt í HönnunarMars að þessu sinni með sýningunni Vendum okkar kvæði í kross og fyrirlestri um hönnun, skapandi hugsun í hönnunarferlinu og árangursríkar hönnunaraðferðir. Lesa meira
 
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tekur við Eddunni í Þjóðminjasafni Íslands.

Eddan komin í Þjóðminjasafn Íslands

Íslenska þjóðin hlaut heiðursverðlaun íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2010 við afhendingu Edduverðlaunanna laugardaginn 27. febrúar s.l. Styttan er nú til sýnis í anddyri Þjóðminjasafnsins þar sem verðlaunahafar - Íslendingar allir - geta skoðað hana og tekið myndir af sér með gripinn. Lesa meira
 

Sérsýningar

Ættarklæði Guðrúnar

Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur

Bogasalur 30. janúar - 25. apríl 2010

Laugardaginn 30. janúar verður sýningin Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands.     Lesa meira
 

Útsaumsverk úr fórum safnsins

Þriðja hæð 30. janúar - 25. apríl 2010

Í tengslum við sýninguna Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur verður úrval útsaumsverka úr fórum safnsins til sýnis á 3. hæð. Útsaumurinn er frá 17., 18. og 19. öld og sýnir ómetanlegan arf íslenskrar handmenntar.
 

Viðburðir

Þjóðbúningar

Þjóðbúningadagur

Sunnudaginn 14. mars verður þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands. Gestir eru hvattir til að mæta á þjóðbúningi til að sýna sig og sjá aðra. Sérstaklega er hvatt til þess að fólk mæti á þjóðbúningi síns heimalands. Viðburðurinn hefst kl. 14:00 og verður aðgangur ókeypis fyrir alla sem mæta í safnið á þjóðbúningi. Lesa meira
 
fyrirlestrarsalur

Fyrirlestrar í Þjóðminjasafni Íslands veturinn 2009-2010

Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjölda fyrirlestra. Sjálft stendur safnið fyrir hádegisfyrirlestrum annan hvern þriðjudag. Sagnfræðingafélag Íslands býður einnig upp á hádegisfyrirlestra annan hvern þriðjudag, en að auki verða reglulegir fyrirlestrar í vetur á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Hönnunarsjóðs Auroru. Lesa meira
 


Húsasafn

Sómastaðir við Reyðarfjörð

Sómastaðir við Reyðarfjörð

Á Sómastöðum er nú gamalt steinhús sem Hans Jakob Beck útvegsbóndi byggði við torfbæinn þar árið 1875. Sérstaða þess felst einkum í byggingatækninni en útveggir eru hlaðnir úr lítt tilhöggnu grágrýti sem er bundið er saman með smiðjumó, einni tegund jökulleirs. Ekki munu varðveitt önnur dæmi um þessa tækni í byggingum hér á landi.

Lesa meira
 

Útgáfa

Kirkjur Íslands 9

Kirkjur Íslands

Ritröð Þjóðminjasafns Íslands, Húsafriðunarnefndar og Biskupsstofu í samstarfi við ýmsa aðila

Þjóðminjasafnið stendur að útgáfu ritraðar um kirkjur Íslands ásamt Húsafriðunarnefnd ríkisins og Biskupsstofu í samstarfi við Hið íslenska bókmenntafélag. Fornleifavernd ríkisins hefur auk þess komið að útgáfu 5.-12. bindis, Byggðasafn Skagfirðinga tók þátt í útgáfu 5.-6. bindis, Minjasafnið á Akureyri og Byggðasafnið á Dalvík tóku þátt í útgáfu 9.-10. bindis. Meðútgefandi 11. og 12. binda er Kjalarnessprófastsdæmi og binda nr. 13 og 14 er Borgarfjarðarprófastsdæmi.

Lesa meira
 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.