Kirkjubæjarklaustur

Kirkjubæjarklaustur


„1186 - Klaustur sett á Kirkjubæ“ stendur í íslenskum annálum. Að öðru leyti er lítið vitað
um aðdraganda stofnunar klaustursins. Halldóra Eyjólfsdóttir, fyrsta abbadís Kirkjubæjarklausturs, var ekki vígð fyrr en árið 1189, enda mátti engin taka abbadísarvígslu nema hafa dvalist a.m.k. þrjú ár í klaustri. Halldóra þessi er talin hafa verið dóttir Eyjólfs Sæmundarsonar og var því uppeldissystir Þorláks helga biskups sem gekkst fyrir stofnun klaustursins í sinni biskupstíð.

Í máldögum getið um eignir Kirkjubæjarklausturs en aldrei minnst á klausturhúsin sjálf. Þó eru einu sinni nefndir 20 glergluggar sem hafa verið mikil verðmæti á 14. öld og vitna um glæsileika klausturbygginganna. Í máldaga frá 1397 kemur fram að Kirkjubæjarklaustur átti ekki aðeins 25 jarðir og ítök í mörgum fleiri heldur einnig dýrustu kirkjugripi úr gulli og fílabeini svo og hinn besta skrúða.

Hreppsnefnd Skaftárhrepps samþykkti þann 13. febrúar 1995 að sækja um styrk til að hefja rannsóknir á rústum nunnuklaustursins á Kirkjubæ. Haustið 1995 var jarðsjármælingum beitt til að kanna þykkt, dreifingu og gerð mannvistarlaga. Línuhönnun hf. vann verkid med styrk úr Þjódhátídarsjóði. Jarðsjármælingunum var haldið áfram árin 1998, 2000 og 2002 med eigin framlögum Kirkjubæjarstofu, Línuhönnunar og med styrk frá Rannís. Sumarið 2002 voru svo segulsviðsmælingar og viðnámsmælingar gerðar. Engu að síður var ekki hægt med hjálp jarðsjármælinga að staðfesta legu klausturrústanna.

Sumarið 2000 voru grafnar prufuholur til að freista þess enn frekar staðsetja klaustrið á Kirkjubæ. Niðurstöður þeirra sýndu að klaustrið stóð ekki þar sem í dag eru kallaðir Klausturhólar. Þar munu hafa staðið útihús langt aftur á miðaldir. Árin 2002 og 2003 var grafið á samtals um 100 m2 svæði sunnan Kirkjuhóla (Bæjarhól). Leifar þriggja bygginga fundust og voru yngri byggingarnar tvær að mestu rannsakaðar árin 2002 og 2003. Byggingarnar þrjár hafa ekki staðið samtímis heldur tóku þær við hver af annari.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica