Skálholt

Skálholt

Skálholt var öldum saman einhver mikilvægasti staður á Íslandi, valdamiðstöð og biskupssetur. Allt breyttist þetta í lok 18. aldar er skóli og biskupsetur voru flutt burt.
Við fornleifarannsóknir í Skálholti 2002-2007 var einkum kannaður kjarni staðarhúsa, en á árunum1954-1958 höfðu farið þar fram viðamiklar fornleifarannsóknir vegna fyrirhugaðrar kirkjubyggingar og rannsakaðir grunnar eldri kirkna.

Meðal þeirra bygginga sem rannsakaðar voru 2002-2007 voru íveruhús biskups, skólahús og svefnskáli skólapilta, kjötskemma, búr, borðstofa skólasveina, sýruklefi, eldhús, einnig löng göng sem tengdu húsin. Þessi húsaþyrping er sunnan og suðvestan við kirkju og hafði verið hægt að ganga um undirgang frá staðarhúsum inn í hinar eldri kirkjur.

Bolli

Einkum hafa verið kannaðar minjar frá 17. og 18. öld, en ljóst er að undir þeim má búast við minjum frá eldri tímum. Þá er einnig vitað að töluvert er af byggingum fyrir utan rannsóknarsvæðið. Ein af ástæðum þess hve mikið af rústum húsa frá 17. og 18. öld hefur varðveist vel er einmitt að skóli og biskupssetur fluttu. Þá fækkaði fólki í Skálholti og umsvif minnkuðu og því var ekki byggt aftur ofan í mörg af hús

unum á 19. og 20. öld.vinnumynd

Við rannsóknina hafa einnig fundist fjölmargir gripir, stórir og smáir, einnig dýrabein og leifar jurta og skordýra. Allt varpar þetta ljósi á daglegt líf á staðnum.




 




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.