Þingstaðir
Á Íslandi eru víða mannvirkjaleifar sem virðast tengjast þinghaldi. Markmið rannsóknarverkefnisins Þinghald til forna sem Kristnihátíðarsjóður styrkti á árunum 2002-2005, var að rannsaka minjar um þinghald á Íslandi, aldur þeirra og ástand, athuga skipulag þingstaða, staðsetningu og þróun.
Árin 2002-2004 voru gerðar rannsóknir á Þingvöllum við Öxará. Í ljós komu m.a. vel varðveittar mannvistarleifar á Biskupshólum. Hluti þeirra var mjög forn eða allt frá upphafi þinghalds. Óvíst er um hlutverk þeirra, en þær gætu verið búðaleifar. Engir gripir eða önnur ummerki fundust er gefa til kynna að þar hafi staðið útihús eða bær.
Árið 2005 fóru fram rannsóknir á Miðmundatúni á Þingvöllum og gerðar voru athuganir á „Lögbergi“, á mannvirki á Spönginni og á hól á eystri bakka Öxarár, á móts við suðurenda Brennugjár. Í Miðmundatúni eru töluverðar mannvirkjaleifar, en óvíst er um hlutverk þeirra. Gætu þær verið búðaleifar þar sem engir gripir eða önnur ummerki fundust er gefa til kynna að þar hafi staðið útihús eða bæjarleifar.
Á Lögbergi var gamall rannsóknarskurður frá 1880 opnaður að hluta. Í ljós kom illa
farin hleðsla, sem gæti hafa verið búðargafl. Jafnframt var opnaður skurður frá 1880 á Spönginni og í honum sást hleðsla úr torfi og grjóti. Undir hleðslunni fannst landnámslagið svo sem vænta mátti, en ekki aðrar vísbendingar um aldur eða hlutverk mannvirkisins.
Hóllinn við suðurenda Brennugjár reyndist manngerður, a.m.k. að hluta. Í honum fundust hleðsluleifar og lítill bútur af gangsilfri. Gæti þar hafa verið búð.
Auk alþingis, sem haldið var á Þingvöllum á hverju sumri, voru haldin þing í héruðum bæði vor og haust. Á vorþingi var þingað um innanhéraðsmál og alþingi undirbúið, en á haustþingi voru nýjar lagasetningar kynntar.
Gerðar voru athuganir á vorþingstöðunum Þingeyrum og Krakalæk
og grafið í meinta búðartóft í Þingey í Skjálfandafljóti sem og í garðlög sem girða af þingstaðinn.
Tóftin er úr torfi og reyndist eldri en gjóskulag frá 1300. Í henni fundust allmargar stoðarholur, en ekkert gólflag, bein eða gripir. Það bendir til þess að þar hafi ekki verið búið að staðaldri.
Á næstu árum er fyrirhugað að halda áfram uppmælingu vorþingstaða og kanna aldur mannvirkja í Skuldaþingsey með takmörkuðum uppgrefti.

