Verkefni fyrir skóla

Ágætu kennarar.

Fyrir sýninguna Endurfundir hafa verið útbúin verkefni fyrir 2.-4. bekk og fyrir framhaldsskóla og eru þessir hópar boðnir sérstaklega velkomnir á sýninguna. Kennari safnsins tekur á móti hópunum með um 15 mínútna kynningu um sýninguna. Eftir kynninguna eru nemendur á vegum eigin kennara og geta þá leyst verkefni, sem hægt er að prenta út hér að neðan. Blýanta og skrifspjöld er hægt að fá lánuð á safninu. Eftir það er upplagt að nemendurnir skoði sýninguna sjálfir.

Yngri börnin geta leikið sér að því að prenta stafi, teikna andlit eftir höfuðkúpu, púsla, leira og byggja við líkan af miðaldabúðum. Svo má kíkja inn í kassana á veggjunum, skoða myndirnar og lesa textann á spjöldunum. Best er að skipta nemendunum í hópa því ekki komast allir að í einu. Tekið er á móti einum bekk í einu. Panta þarf fyrir hópa á kennsla@thjodminjasafn.is eða í síma 530 2200.


Verkefni fyrir 4.-6. bekk (til útprentunar)

Verkefni fyrir framhaldsskóla (til útprentunar)





Þetta vefsvæði byggir á Eplica