Komdu og sjáðu
Forvitinn gestur skoðar fræðslumöppu

Þættir fortíðar í myndamöppum

Komdu og sjáðu... myndir

Myndir sem sýna lífið áður fyrr geta hjálpað safngestum að setja sig í spor forfeðranna og skoða gripina í því samhengi sem þeir gætu hafa verið notaðir eða hafa komið fyrir í sam­­félagi fortíðarinnar. Mynd­efnið er sótt víða, til dæmis í land­­námið, heimsmynd heiðn­innar, klausturlífið, fyrstu prent­­­smiðjuna, einokunar­versl­unina, flökkulífið og Vestur­heims­ferð­irnar.

Myndirnar eru staðsettar í möppum við hlið leðursæta í sýningunni. Viðfangsefni hverrar möppu tengist staðsetningu hennar í sýningunni. Í flestum möppum hefur listamaðurinn teiknað gripi, sem eru í sýningar­skápunum í kring, inn á teikning­arnar. Þannig fær safn­gesturinn hug­mynd um notkun hans og útlit áður fyrr.

Myndamöppurnar eru dreifðar víða um sýningunaMyndamöppur:

  • Lífið við landnám
  • Klausturlíf
  • Heiðin heimsmynd
  • Klæðnaður og skart
  • Heiðnir greftrunarsiðir
  • Fyrstu ár kristninnar
  • Fyrsta prentsmiðjan
  • Bætt verkmenning
  • Fólksflutningar til Vesturheims
  • Verslun og einokun
  • Flakkarar og förumenn




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica