Lesstofa

Til hvíldar og lesturs

Í lesstofunni á þriðju hæð safnsins er hægt að setjast niður við tölvur og skoða ýmislegt fræðsluefni tengt grunnsýningunni eða kynna sér bækur sem gefnar hafa verið út í tengslum við Þjóminjasafnið og sýningar þess. Lesstofan kemur sér vel fyrir þá sem vilja skoða margmiðlunarefni og ljósmyndir af grunnsýningunni á einum stað. Þar eru auk þess myndatextar fyrir allar ljósmyndirnar og aðgangur að Sarpi, miðlægum gagnagrunni Þjóðminjasafnsins.

Setustofan er huggulegt rými í gamla anddyri Þjóðminjasafnsins með sófum og útsýni yfir hljómskálagarðinn þar sem hægt er að hvíla sig eða fletta í bókum.


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica