Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þegar gengið er gegnum aldirnar í sýningarsölum Þjóðminjasafnsins verða þar fyrir sjö hljóðstöðvar eða íbúastöðvar, ein fyrir hver 100-200 ár. Þær samanstanda af litlu borði og áföstu sæti. Á borðinu er sími og þar má sjá algeng mannanöfn tímabilsins, ættartré og upplýsingar um gengna Íslendinga, bæði fullorðna og börn, sem hægt er að ná símasambandi við.
Margmiðlun er nýstárleg leið til miðlunar og gefur möguleika á að miðla menningarsögunni á fjölbreyttari og oft ítarlegri máta en hægt er að gera eingöngu með gripum. Eins nýtist margmiðlun vel til að dýpka sýnina, brúa bilið þar sem tíminn hefur ekki skilið eftir áþreifanlegar minjar og skapa þannig frekari samfellu í sýningunni. Margmiðlun gegnir veigamiklu hlutverki á grunnsýningunni. Settir hafa verið upp tólf snertiskjáir með aðgengilegu viðmóti í sýningarsölunum. Þar ræður notandinn ferðinni, hann ákveður hversu djúpt er kafað í efnið, hversu oft hann skoðar það og hversu lengi hann dvelur við hverja kynningu. Þetta þýðir að hver gestur mótar upplifun sína af sýningunni og því verður reynsla hans einstök. Það hefur sýnt sig að oft situr meira eftir þegar fólk tekur virkan þátt, upplifunin verður eftirminnileg og hefur meira fræðslugildi.