Skemmtimenntun
Krakkar í skemmtimenntun

Leikið með menningarsöguna

Á annarri hæð grunnsýningarinnar eru tvö herbergi helguð skemmtimenntun. Þar er gestum Þjóðminjasafnsins, börnum og fullorðnum, boðið að reyna sig við margs konar þrautir og leiki. Tilgangurinn er að virkja þá og skapa tilbreytingu í sýninguna. Gestir fá að reyna ýmislegt á eigin skinni og þreifa á hlutum. 

Þessi nálgun ætti að geta stuðlað að auknum áhuga og skilningi og fólk fær tækifæri til að sjá safnkostinn í nýju ljósi.

Í stærra herberginu eru búningar frá ýmsum tímum sem fólk getur séð sig í frá öllum hliðum. Þar er hægt að smeygja sér í hjálm frá víkingatímanum ogStelpa setur sig í spor víkings prófa sverð og skjöld. Þar má einnig finna hversu þung hringabrynja og hjálmur eru. Þá gefst gestum tækifæri til að skoða eftirlíkingu af kumli og raða saman beinum. Í sögukompunni er hægt að horfa og hlusta á þjóðsögur sagðar.

Í minna herberginu er risapúsl. Það er landakort af Íslandi frá 16. öld þar sem gægjast má inn í athyglisverða hluta kortsins. Þarna eru ýmsar þrautir, svo sem endurgerð af gömlu morse-tæki tengt tölvu, geta má uppá hlutverki merkilegra gripa, skoða þrívíddarmyndir, þreifa á gripum, og margt fleira.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica