Viðburðir

Þjóðbúningar

Þjóðbúningadagur

Sunnudaginn 14. mars verður þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands. Gestir eru hvattir til að mæta á þjóðbúningi til að sýna sig og sjá aðra. Sérstaklega er hvatt til þess að fólk mæti á þjóðbúningi síns heimalands. Viðburðurinn hefst kl. 14:00 og verður aðgangur ókeypis fyrir alla sem mæta í safnið á þjóðbúningi. Lesa meira
 
fyrirlestrarsalur

Fyrirlestrar í Þjóðminjasafni Íslands veturinn 2009-2010

Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjölda fyrirlestra. Sjálft stendur safnið fyrir hádegisfyrirlestrum annan hvern þriðjudag. Sagnfræðingafélag Íslands býður einnig upp á hádegisfyrirlestra annan hvern þriðjudag, en að auki verða reglulegir fyrirlestrar í vetur á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Hönnunarsjóðs Auroru. Lesa meira
 
Ættarklæði Guðrúnar

Leiðsögn um sýninguna Ævispor

Þriðjudaginn 9. mars n.k. mun Guðrún Guðmundsdóttir veita leiðsögn um sýninguna Ævispor í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands. Leiðsögnin hefst kl. 12:05. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Lesa meira
 
Stelpa að stimpla

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 7. mars kl. 14 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Lesa meira
 
Greiningardagur

Áttu forngrip í fórum þínum?

Sunnudaginn 7. mars n.k. verður almenningi í sjötta sinn boðið að koma með gamla gripi til greiningar hjá sérfræðingum Þjóðminjasafns Íslands. Dagskráin hefst kl. 14 og lýkur kl. 16. Lesa meira
 

Útsaumur og textíll í Þjóðminjasafni Íslands

Þriðjudaginn 23. febrúar 2010 mun Lilja Árnadóttir fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands veita leiðsögn um valin útsaumsverk úr Þjóðminjasafni á sýningu á þriðju hæð safnhússins við Suðurgötu. Leiðsögnin er hluti af hádegisfyrirlestraröð safnsins, en í vor verður fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. Leiðsögnin hefst kl. 12:05. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Lesa meira
 
safnanott-2010

Safnanótt

í Þjóðminjasafni Íslands

Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Safnanótt í Þjóðminjasafni Íslands og er þema kvöldsins draumar af ýmsum toga. Lesa meira
 
Ættarklæði Guðrúnar

Leiðsögn um sýninguna Ævispor

Þriðjudaginn 9. febrúar mun Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur og annar sýningarhöfunda veita leiðsögn um sýninguna Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur. Leiðsögnin hefst kl. 12:05 fyrir framan Bogasal Þjóðminjasafnsins. Leiðsögnin er hluti af hádegisfyrirlestraröð safnsins, en í vor verður fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Lesa meira
 
Helga Einarsdóttir safnfræðslufulltrúi spjallar við börn í Þjóðminjasafninu

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 7. febrúar kl. 14:00 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára. Tilboð á aðgangseyri, tveir fyrir einn, gildir á sunnudag. Börn að 18 ára aldri fá þó frítt inn að vanda.
Lesa meira
 
Grýla og Leppalúði

Aðventan á Þjóðminjasafni Íslands

Það verður líf og fjör á Þjóðminjasafninu á aðventunni. Jólasveinarnir heimsækja safnið að vanda, á sýningunni Sérkenni sveinanna býðst börnum að snerta gripi tengda jólasveinunum, Grýla og Leppalúði kíkja í heimsókn, fjölskyldum býðst að fara í sérstakan jólaratleik og að auki verður kynning á íslenskum jólasiðum á íslensku og ensku. Lesa meira
 
Gömul jól

The Icelandic Yule

Fyrirlestur á ensku um íslenska jólasiði

Laugardaginn 19. desember kl. 13:00 heldur dr. Terry Gunnell erindi í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands um íslenska jólasiði í aldanna rás, frá heiðnum goðum til gárunga og hrekkjóttra íslenskra jólasveina. Fyrirlesturinn er á ensku. Eftir fyrirlesturinn verða léttar veitingar í boði The English- Speaking Union á Íslandi. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Lesa meira
 
Hrútaspilið

Íslandsmeistaramótið í Hrútaspili

Sunnudaginn 13. desember verður Íslandsmeistaramótið í Hrútaspilinu haldið í Þjóðminjasafni Íslands.
Lesa meira
 
Gömul jól

Íslenskir jólasiðir

Laugardaginn 12. desember mun Árni Björnsson flytja erindi með myndum um upphaf og þróun íslenskra jólasiða í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 13:00 og er öllum opinn.
Lesa meira
 
Ása Guðmundsdóttir Wright

Leiðsögn um sýninguna Ása G. Wright - frá Íslandi til Trinidad

Sunnudaginn 13. nóvember kl. 14:00 mun Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur veita leiðsögn um sýninguna Ása G. Wright - frá Íslandi til Trinidad. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Lesa meira
 

Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags 2009

Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags verður haldinn fimmtudaginn 10. desember
í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Fundurinn hefst kl. 16:00 og er öllum opinn. Lesa meira
 

Myndir í tíma - Images in time

Alþjóðleg ráðstefna um ljósmyndir 27. - 28. nóvember í Þjóðminjasafninu

Markmið ráðstefnunnar er að efla þverfaglega umræðu meðal fræðimanna um faglega þekkingu og aðferðir við rannsóknir á ljósmyndum sem uppsprettu þekkingar um fortíð og nútíð. Rannsakendur á sviði ljósmynda, tísku, kvikmynda, menningar- og sjónfræða, listfræði og annarra greina sem tengjast skapandi iðnaði munu fjalla um greiningu og notkun ljósmynda í fjölbreyttu samhengi. Lesa meira
 
vedurspar

Þjóðháttasöfnun við Þjóðminjasafn Íslands

Þriðjudaginn 24. nóvember mun Ágúst Ó. Georgsson fagstjóri Þjóðháttasafns Þjóðminjasafns Íslands kynna þjóðháttasöfnun í hádegisfyrirlestri í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Í erindinu verða starfsemi og áherslur Þjóðháttasafnsins kynntar og farið yfir helstu þætti í sögu þess. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Lesa meira
 
Forverðir við uppsettningu Endurfunda

Hádegisfyrirlestur um varðveislu gripa og listaverka í heimahúsum

Þriðjudaginn 10. nóvember mun Nathalie Jacqueminet fagstjóri forvörslu við Þjóðminjasafn Íslands gefa góð ráð um meðhöndlun gamalla gripa og listaverka í heimahúsum. Lesa meira
 
Greiningardagur

Áttu forngrip í fórum þínum?

Þjóðminjasafn Íslands býður upp á greiningu á gömlum gripum sunnudaginn 8. nóvember kl. 14-16.

Næstkomandi sunnudag býður Þjóðminjasafn Íslands fólki að koma með forngripi og gamla muni í skoðun og greiningu. Sérfræðingar um gamla gripi munu taka vel á móti öllum í forsalnum á 3. hæð safnsins kl. 14-16. Lesa meira
 

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 1. nóvember kl. 14:00 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 9-12 ára. Lesa meira
 
Geymslur

Kynning á starfsemi munasafns Þjóðminjasafns Íslands

Þriðjudaginn 27. október kynnir Lilja Árnadóttir fagsjóri starfsemi munasafns Þjóðminjasafns Íslands og söfnun og skráningu sem fer fram á vegum þess. Kynningin er hluti af hádegisfyrirlestraröð Þjóðminjasafnsins, en í fyrirlestraröð haustsins gefst áhugasömum færi á að kynna sér hluta þess fjölbreytta starfs sem fer fram í Þjóðminjasafninu.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 í fyrirlestrasal safnsins. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Lesa meira
 
prentmót

Málþing um grafík á Íslandi

Föstudaginn 23. október verður haldið málþing um grafík í Þjóðminjasafni Íslands í tengslum við sýninguna Svart á hvítu - prentlistin og upplýsingabyltingin. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og stendur frá kl. 15-17. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Lesa meira
 
DSC_0211

Ljósmyndasafn Íslands

Þriðjudaginn 13. október kynnir Inga Lára Baldvinsdóttir Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni og þá söfnun og skráningu sem fer fram á vegum þess. Kynningin er hluti af hádegisfyrirlestraröð Þjóðminjasafnsins, en í fyrirlestraröð haustsins gefst áhugasömum færi á að kynna sér hluta þess fjölbreytta starfs sem fer fram í Þjóðminjasafninu.

Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 í fyrirlestrasal safnsins. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Lesa meira
 
born

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 4. október kl. 14:00 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára. Lesa meira
 

Þýtt og túlkað á Íslandinu nýja

Afmælisþing Bandalags þýðenda og túlka verður haldið á Þjóðminjasafni Íslands miðvikudaginn 30. september 2009 kl. 13-17.
Lesa meira
 
Kirkjur Íslands

Ráðstefna um Kirkjur Íslands

Í tilefni af útkomu tveggja nýrra binda af Kirkjum Íslands verður haldin ráðstefna í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands fimmtudaginn 24. september kl. 13:15-15:00. Flutt verða sjö stutt erindi. Lesa meira
 

Opið hús á 17. júní

Á þjóðhátíðardag Íslendinga þann 17. júní næstkomandi verður aðgangur ókeypis á Þjóðminjasafni Íslands. Boðið verður upp á leiðsögn um sýningar safnsins bæði á íslensku og ensku og þjóðlegur varningur verður á boðstólum í safnbúðinni. Allir velkomnir. Lesa meira
 
Katrín Gudmundsson ferðamálafræðingur segir gestum frá grunnsýningu Þjóðminjasafnsins

Leiðsögn um grunnsýninguna

Boðið er upp á leiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins á íslensku alla sunnudaga klukkan 14. Einnig má panta leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Leiðsögnin tekur um 40-50 mínútur.

Lesa meira
 

The Prize of the Pole

Sunnudaginn 24. maí kl. 14:00 sýnir Mannfræðifélag Íslands í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands verðlaunakvikmyndina The Prize of the Pole eftir Staffan Julén. Lesa meira
 

Sunnudagsleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands

Í sumar verður boðið upp á leiðsögn á íslensku alla sunnudaga í Þjóðminjasafni Íslands.

Lesa meira
 
Keldudalur

Hádegisleiðsögn

Síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Þjóðminjasafnsins í tengslum við sýninguna Endurfundi verður haldinn þriðjudaginn 5. maí n.k. Þá mun Guðný Zoëga fornleifafræðingur fjalla um minjar sem fundist hafa við björgunarrannsóknir í Keldudal í Skagafirði. Lesa meira
 
Helga Einarsdóttir safnfræðslufulltrúi spjallar við börn í Þjóðminjasafninu

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 3. maí kl. 14:00 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 9-12 ára. Lesa meira
 
Kirkjubæjarklaustur

Að vefa bænir

Líf og störf nunnanna á Kirkjubæjarklaustri

Þriðjudaginn 21. apríl mun Kristján Mímisson fornleifafræðingur segja frá fornleifarannsóknunum á Kirkjubæjarklaustri sem fram fóru á árunum 1995 - 2006 í hádegisleiðsögn.

Lesa meira

 
Skálholt

Hádegisleiðsögn

Annan hvern þriðjudag kl. 12:05

Þriðjudaginn 7. apríl mun Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðingur fjalla um fornleifarannsókn á húsakosti í Skálholti og sýninguna Endurfundi í hádegisleiðsögn á Þjóðminjasafni Íslands. Lesa meira
 
Reykholt, séð yfir kirkjugrunninn við upphaf uppgraftar 2005.

Hádegisleiðsögn

Annan hvern þriðjudag kl. 12:05

Þriðjudaginn 24. mars mun Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur fjalla um rannsóknina á kirkjustæðinu í Reykholti og sýninguna Endurfundi í hádegisleiðsögn á Þjóðminjasafni Íslands. Lesa meira
 
skriduklaustur

Hádegisleiðsögn

Annan hvern þriðjudag kl. 12:05

Þriðjudaginn 10. mars mun Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fjalla um fornleifarannsóknina á Skriðuklaustri í Fljótsdal og sýninguna Endurfundi í hádegisleiðsögn á Þjóðminjasafni Íslands. Lesa meira
 
Gásaborð

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 1. mars kl. 14 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands.

Að þessu sinni verður hin nýja og spennandi sýning Endurfundir skoðuð, en þar má sjá allskonar áhugaverða gripi sem fundust við fornleifarannsóknir á mörgum stöðum á Íslandi. Börnin fá að kynnast grunnhugmyndum forleifafræðinnar og setja sig í spor fólks „í gamla daga“. Sýningunni er ætlað að höfða til allra aldurshópa. Leiðsögnin er ætluð börnum á aldrinum 6-10 ára. Lesa meira
 
Inga Lára Baldvinsdóttir veitir leiðsögn um ljósmyndasýningu í Þjóðminjasafninu

Hádegisleiðsögn

Annan hvern þriðjudag kl. 12:05

Þriðjudaginn 24. febrúar mun Ragnheiður Traustadóttir fjalla um sýninguna Endurfundi í hádegisleiðsögn á Þjóðminjasafni Íslands.

Lesa meira
 
Helga Einarsdóttir safnfræðslufulltrúi spjallar við börn í Þjóðminjasafninu

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 1. febrúar kl. 14:00 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára.

Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld. Þaðan liggur leiðin gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans.

Lesa meira

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.