Leiðsögn um grunnsýninguna
Boðið er upp á leiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins á íslensku alla sunnudaga klukkan 14. Einnig má panta leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Leiðsögnin tekur um 40-50 mínútur.
Fastar leiðsagnir
Vetur (16. september - 31. maí)
Leiðsögn á íslensku: sunnudaga kl. 14.00
Leiðsögn á ensku: laugardaga kl. 14.00
Sumar (1. júní - 15. september)
Leiðsögn á íslensku: sunnudaga kl. 14.00
Leiðsögn á ensku: alla daga kl. 11.00.
Sérpantaðar leiðsagnir
Hópar geta pantað leiðsögn á íslensku eða ensku hvenær sem er á opnunartíma safnsins, að því gefnu að ekki sé búið að bóka tímann. Einnig er reynt að koma til móts við þá sem vilja leiðsögn á öðrum tungumálum, til dæmis dönsku, frönsku, spænsku, ungversku, pólsku, rússnesku, þýsku og ítölsku.
Leiðsögn fyrir hópa kostar 600 kr. á mann (300 kr. fyrir aldraða eða öryrkja) en aldrei minna en 6000 kr. fyrir hóp. Aðgangur er innifalinn.

