Viðburðir
skriduklaustur

Hádegisleiðsögn

Annan hvern þriðjudag kl. 12:05

Þriðjudaginn 10. mars mun Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fjalla um fornleifarannsóknina á Skriðuklaustri í Fljótsdal og sýninguna Endurfundi í hádegisleiðsögn á Þjóðminjasafni Íslands.

Umfjöllunin skiptist í tvo hluta. Í þeim fyrri verður saga fornleifarannsókna á Skriðuklaustri rakin í máli og myndum í erindi sem flutt verður í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Þar verður greint frá aðdraganda og upphafi þeirra árið 2000 og framgangi síðan þá. Skýrt verður frá fjármögnun, styrktaraðilum og samstarfsaðilum. Ennfremur verður sagt frá þeim greiningum sem gerðar hafa verið á ýmsum efniviði frá uppgreftinum, jafnt af nemum í fornleifafræði sem og sérfræðingum sem fengnir hafa verið sérstaklega til þess að sinna þeim. Fjallað verður um helstu niðurstöður uppgraftarins, útgáfu efnis um hann og kynningar hér heima og erlendis. Síðari hlutinn byggist á leiðsögn um þann hluta sýningarinnar sem snýr að Skriðuklaustri.

Leiðsögnin hefst kl. 12:05 og mun taka um 50 mínútur í heild en hvor hluti um 25 mínútur.

Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica