Viðburðir
Hádegisleiðsögn
Annan hvern þriðjudag kl. 12:05
Þriðjudaginn 24. mars mun Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur fjalla um rannsóknina á kirkjustæðinu í Reykholti og sýninguna Endurfundi í hádegisleiðsögn á Þjóðminjasafni Íslands.
Leiðsögnin skiptist í tvo hluta og tekur alls 50 mínútur. Fyrri hlutinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins þar sem gerð verður grein fyrir nokkrum atriðum úr rannsókninni. Síðan verður gengið um þann hluta sýningarinnar sem snýr að Reykholti.
Á árunum 2001-2005 styrkti Kristnihátíðarsjóður fornleifarannsóknir á nokkrum helstu sögustöðum þjóðarinnar. Á sýningunni Endurfundir má sjá úrval þeirra gripa sem fundist hafa hingað til við rannsóknirnar. Sýningunni er ætlað að höfða til allra aldurshópa.

