Barnaleiðsögn
Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld. Þaðan liggur leiðin gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans.
Meðal þess sem verður skoðað er 800 ára gamall skór, dularfullur álfapottur, gömul hurð með fallegum myndum, beinagrindur, hringabrynja og galdramunir. Rætt verður um það sem börnin sjá en ýmsar spurningar vakna frammi fyrir gripum fortíðar. Á Þjóðminjasafninu eru til dæmis alls konar spennandi sverð, axir og spjót sem eru um 1000 ára gömul.
Leiðsögnin er um 45 mínútur að lengd.
Á meðan börnin skoða grunnsýninguna geta hinir fullorðnu tekið þátt í íslenskri leiðsögn ætlaðri fullorðnum um safnið.
Nánari upplýsingar veitir Helga Einarsdóttir í síma 530-2200 eða á netfangið kennsla@thjodminjasafn.is

