Viðburðir
Hádegisleiðsögn
Síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Þjóðminjasafnsins í tengslum við sýninguna Endurfundi verður haldinn þriðjudaginn 5. maí n.k. Þá mun Guðný Zoëga fornleifafræðingur fjalla um minjar sem fundist hafa við björgunarrannsóknir í Keldudal í Skagafirði.
Sérstök áhersla verður lögð á rannsóknir á mannabeinum sem komu upp í kumlateigi og kirkjugarði úr frumkristni og hvaða nýju þekkingu þessar rannsóknir hafa fært okkur.
Leiðsögnin skiptist í tvo hluta og tekur alls 50 mínútur. Fyrri hlutinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins þar sem gerð verður grein fyrir nokkrum atriðum úr rannsókninni. Síðan verður gengið um þann hluta sýningarinnar sem snýr að Keldudal.
Leiðsögnin hefst kl. 12:05. Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir.

