Barnaleiðsögn
Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld. Þaðan liggur leiðin gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans.
Meðal þess sem verður skoðað er 800 ára gamall skór, dularfullur álfapottur, gömul hurð með fallegum myndum, beinagrindur, hringabrynja og galdramunir. Rætt verður um það sem börnin sjá en ýmsar spurningar vakna frammi fyrir gripum fortíðar. Á Þjóðminjasafninu eru til dæmis alls konar spennandi sverð, axir og spjót sem eru um 1000 ára gömul.
Börnin fá líka að hlusta á frásögn barna úr fortíðinni en í Þjóðminjasafninu er hægt að ná ,,símasambandi“ við lítinn landnámsstrák og fleiri skemmtilega krakka.
Steinunn Guðmundardóttir safnfræðslufulltrúi annast barnaleiðsögnina sem er um 45 mínútur að lengd.
Safnfræðsla Þjóðminjasafnsins stendur fyrir öflugu barnastarfi og er ýmislegt í boði fyrir börn á safninu.
Börn eru alltaf velkomin í Þjóðminjasafnið og fjölskyldufólk er hvatt til að fjölmenna.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Guðmundardóttir í síma 530-2200 eða á netfangið kennsla@thjodminjasafn.is

