Viðburðir
Málþing um grafík á Íslandi
Föstudaginn 23. október verður haldið málþing um grafík í Þjóðminjasafni Íslands í tengslum við sýninguna Svart á hvítu - prentlistin og upplýsingabyltingin. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og stendur frá kl. 15-17. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Dagskráin er unnin í samvinnu við Íslenska grafík. Ríkharður Valtingojer, Valgerður Hauksdóttir og Gunnhildur Þórðardóttir flytja erindi fyrir hönd Íslenskrar grafíkur, Friðrik Friðriksson prentráðgjafi gefur innsýn í breytingar í prentiðnaði og Ágústa Kristófersdóttir sýningarstjóri Þjóðminjasafnsins kynnir sýninguna, Svart á hvítu - prentlistin og upplýsingabyltingin. Að lokum verður sýningin skoðuð.

