Viðburðir
Forverðir við uppsettningu Endurfunda

Hádegisfyrirlestur um varðveislu gripa og listaverka í heimahúsum

Þriðjudaginn 10. nóvember mun Nathalie Jacqueminet fagstjóri forvörslu við Þjóðminjasafn Íslands gefa góð ráð um meðhöndlun gamalla gripa og listaverka í heimahúsum.

Safngripir hafa margir verið geymdir lengi í heimahúsum áður en þeir berast á safn. Við erum öll safnarar af einhverju tagi og því er óhætt að segja að á hverju heimili sé einkasafn. En hvernig er best að hugsa um sitt eigið safn til að koma í veg fyrir skemmdir? Nathalie mun veita ráðleggingar um staðsetningu, meðhöndlun og geymslu málverka, teikninga, textíla, ljósmynda, smámuna o.s.frv.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 í fyrirlestrasal safnsins. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica