Viðburðir
Myndir í tíma - Images in time
Alþjóðleg ráðstefna um ljósmyndir 27. - 28. nóvember í Þjóðminjasafninu
Markmið ráðstefnunnar er að efla þverfaglega umræðu meðal fræðimanna um faglega þekkingu og aðferðir við rannsóknir á ljósmyndum sem uppsprettu þekkingar um fortíð og nútíð. Rannsakendur á sviði ljósmynda, tísku, kvikmynda, menningar- og sjónfræða, listfræði og annarra greina sem tengjast skapandi iðnaði munu fjalla um greiningu og notkun ljósmynda í fjölbreyttu samhengi.
Ráðstefnan er skipulögð af Æsu Sigurjónsdóttur, lektor í listfræði við Háskóla Íslands, og Michael Langkjær, lektor í sagnfræði við Saxo Institut Háskólann í Kaupmannahöfn, í samvinnu við CBS Kaupmannahöfn.
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá ráðstefnunnar http://www.hugvis.hi.is/page/hugvis_myndir_i_tima
Vefur ráðstefnunnar http://skrif.hi.is/aesas/

