Aðventan á Þjóðminjasafni Íslands
Jóladagskrá Þjóðminjasafnsins hefst með fjölskyldudagskrá sunnudaginn 6. desember kl. 14. Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn munu kíkja í heimsókn og ræða við börnin um íslenska jólasiði og Pollapönkararnir munu spila fyrir krakkana. Þá verður opnuð sýningin Sérkenni sveinanna, en þar má sjá jólahús með gripum sem tengjast jólasveinunum. Gripina má snerta og geta þeir hjálpað börnum að skilja nöfn jólasveinanna. Í forsal á 3. hæð safnsins er jafnframt hægt að skoða gömul jólatré.
Þetta er þó aðeins upphafið á hinni líflegu jóladagskrá Þjóðminjasafnsins. Jólasveinarnir munu koma í safnið daglega kl. 11 frá og með 12. desember líkt og undanfarin ár. Jóladagskrá Þjóðminjasafnsins hefur áunnið sér hefð og með árunum eignast fjölmarga aðdáendur í hópi yngri gesta safnsins.
Fjölskyldur geta farið í hina sígildu ratleiki Þjóðminjasafnsins. Jólaleikurinn heitir Hvar er jólakötturinn? og snýst um að finna litlu jólakettina sem hafa verið faldir innan um safngripina. Fleiri fjölskylduleikir eru í boði í afgreiðslu safnsins.
12. desember kl. 13:00 mun Árni Björnsson þjóðháttafræðingur fjalla um gamla og nýja jólasiði og uppruna þeirra.
19. desember kl. 13:00 mun Terry Gunnell þjóðfræðingur fjalla um íslenska jólasiði og kynna íslensku jólasveinana. Fyrirlesturinn er á ensku og er kynntur í samstarfi við The English Speaking Union.
Safnbúðin er full af fallegri jólavöru, þjóðlegum leikföngum, vönduðum minjagripum og bókum.
Ókeypis er að hitta jólasveinana og að skoða sýninguna Sérkenni sveinanna allan desember, en að auki er frítt inn á safnið á miðvikudögum og ókeypis aðgangur fyrir börn undir 18 ára aldri alla daga.
Sendu vinum og vandamönnum rafræna jólakveðju

