Viðburðir
Íslandsmeistaramótið í Hrútaspili
Sunnudaginn 13. desember verður Íslandsmeistaramótið í Hrútaspilinu haldið í Þjóðminjasafni Íslands.
Mótið hefst klukkan 14. Allir geta tekið þátt, en skilyrði er þó að eiga nýja Hrútaspilið. Spilið verður til sölu í safnbúð Þjóðminjasafnsins. Áhugasamir þátttakendur þurfa að mæta í Þjóðminjasafnið og skrá sig til leiks fyrir klukkan 14.
Keppt verður í riðlum þar sem tveir "stangast á" í einu og heldur sigurvegarinn síðan áfram í næsta riðil.
Sigurvegarinn verður sæmdur Hrútabeltinu og fær viðhafnarútgáfu af Hrútaspilinu 2009-2010.

