The Icelandic Yule
Fyrirlestur á ensku um íslenska jólasiði
Í nútímanum eru jólin sérstaklega tengd fæðingu Krists en eiga sér þó ævafornar rætur. Í fyrirlestri sínum seilist Terry aftur til goða og norrænnar trúar og skoðar jólin í fornsögum og þjóðsögum. Draugatrú, álfatrú og tröllatrú hafa tengst gömlu íslensku jólunum svo fátt eitt sé nefnt. Terry mun að sjálfsögðu fjalla um hina tröllslegu Grýlu og hina hrekkjóttu íslensku jólasveina. Einnig mun hann segja frá athyglisverðum ættingjum þeirra í nágrannalöndunum. Að lokum verður athyglinni beint að ýmsum jóla- og áramótasiðum í nútímanum.
Terry Gunnell er prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands og býr ekki aðeins yfir mikilli þekkingu heldur einstakri frásagnargáfu. Þar sem fyrirlesturinn er á ensku gefst hér kjörið tækifæri fyrir gesti frá öðrum löndum og þá sem nýlega hafa flutt til landsins til að fræðast um gömlu íslensku jólin. Fyrirlesturinn ætti þó líka að höfða til Íslendinga.
The English-Speaking Union eru alþjóðleg góðgerðasamtök sem stofnuð voru 1918. Hlutverk samtakanna er að styrkja alþjóðlegan skilning og vináttu með notkun enskrar tungu, á tímum þegar enskan er iðulega notuð sem sameiginlegt tungumál á alþjóðavísu. ESU á Íslandi vinna að þessu markmiði með því að bjóða upp á og kynna fyrirlestra og málþing á ensku. Nánari upplýsingar um ESU má finna á www.esu.is eða á Facebook: The English-Speaking Union (ESU) of Iceland.

