Barnaleiðsögn
Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld. Þaðan liggur leiðin gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans.
Meðal þess sem verður skoðað eru 1000 ára gamlar beinagrindur og sverð landnámsmanna, álfapottur, gamalt skip og baðstofa úr torfbæ. Einnig verður spjallað um leikföng barna í gamla daga og hver veit nema spádómsvala leynist í gullakistunni.
Helga Einarsdóttir safnfræðslufulltrúi annast barnaleiðsögnina. Leiðsögnin er um 45 mínútur að lengd.
Safnfræðsla Þjóðminjasafnsins stendur fyrir öflugu barnastarfi og er ýmislegt í boði fyrir börn á safninu. Stefnt er að því að bæta framboðið enn frekar og er barnaleiðsögn hluti af því. Leiðsögnin er í boði fyrsta sunnudag í mánuði í allan vetur og mun hún hverju sinni höfða til mismunandi aldurshópa.

