Viðburðir
Leiðsögn um sýninguna Ævispor
Þriðjudaginn 9. febrúar mun Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur og annar sýningarhöfunda veita leiðsögn um sýninguna Ævispor - útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur. Leiðsögnin hefst kl. 12:05 fyrir framan Bogasal Þjóðminjasafnsins. Leiðsögnin er hluti af hádegisfyrirlestraröð safnsins, en í vor verður fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Á sýningunni Ævispor má sjá útsaumsverk Guðrúnar sem hún hefur unnið með gömul handrit og forn útsaumuð klæði að fyrirmynd. Verk Guðrúnar hafa sterka skírskotun í arf og þjóðlegar hefðir Íslendinga. Þau eru dæmi um hvernig íslenskar konur í nútímanum nýta sér menningararfinn og sýna vel hvernig hefð og nýsköpun fara saman. Sýningin er liður í þeirri stefnu safnsins að endurspegla samtímann og tengsl hans við gamlar hefðir.


