Áttu forngrip í fórum þínum?
Þessir greiningardagar hafa verið mjög vel sóttir og margt skemmtilegt komið þar fram. Samkvæmt fenginni reynslu næst að greina um 50 gripi á þeim tíma. Fólki er því bent á að koma tímanlega og taka númer.
Meðal þess sem fólk hefur komið með til greiningar eru tóbaksdósir sem munu hafa verið í eigu Brynjólfs Péturssonar Fjölnismanns, stokkabelti eignað Ragnheiði biskupsdóttur, forn öxi sem fannst í jörðu í Þjórsárdal og hlutar úr vinsælu bollastelli frá 19. öld.
Í þetta sinn verður einnig forvörður á staðnum sem gefur góð ráð varðandi meðferð gamalla gripa í heimahúsum.
Tekið skal fram að einungis verður reynt að greina muni með tilliti til aldurs, efnis, uppruna o.s.frv. en starfsmenn safna meta ekki verðgildi gamalla gripa. Eigendur taka að sjálfsögðu gripina með sér aftur að lokinni skoðun.

