Viðburðir
Barnaleiðsögn
Sunnudaginn 7. mars kl. 14 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands.
Að þessu sinni verður sýningin Endurfundir skoðuð, en þar má sjá alls konar áhugaverða gripi sem fundust við fornleifarannsóknir á mörgum stöðum á Íslandi. Börnin fá að kynnast grunnhugmyndum forleifafræðinnar og setja sig í spor fólks „í gamla daga“. Leiðsögnin er ætluð börnum á aldrinum 9-12 ára og er um 30 mínútur að lengd.
Nánari upplýsingar veitir Safnfræðsla Þjóðminjasafnsins í síma 530-2200 eða á netfangið kennsla@thjodminjasafn.is

