Viðburðir
Þjóðbúningar

Þjóðbúningadagur

Sunnudaginn 14. mars verður þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands. Gestir eru hvattir til að mæta á þjóðbúningi til að sýna sig og sjá aðra. Sérstaklega er hvatt til þess að fólk mæti á þjóðbúningi síns heimalands. Viðburðurinn hefst kl. 14:00 og verður aðgangur ókeypis fyrir alla sem mæta í safnið á þjóðbúningi.

Á Torgi við Safnbúðina verða sýndar nokkrar af þjóðbúningabrúðum Sigríðar Kjaran, sem hún færði safninu að gjöf árið 2001.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eiga búning til að nota hann og jafnframt fyrir alla sem eru áhugasamir um íslenska þjóðbúninga að koma og sjá fjölbreytni búninganna. Mögulegt verður að fá aðstoð við uppsetningu höfuðbúnaðs á safninu.

Að Þjóðbúningadeginum standa Þjóðminjasafn Íslands, Heimilisiðnaðarfélag Íslands, Þjóðdansafélag Reykjavíkur, Þjóðbúningaráð og Þjóðbúningastofa og munu framangreindar stofnanir og félög kynna starfsemi sína.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica