Jóladagskrá
Leppalúði, Grýla og börnin í Þjóðminjasafninu

Lifandi jóladagskrá og jólasýning fyrir börnin 2008

Jólasveinarnir koma í Þjóðminjasafnið

Margt er um að vera í Þjóðminjasafni Íslands og desember er einn viðburðaríkasti mánuður ársins.

Hægt er að senda vinum og vandamönnum rafrænt jólakort.

Jóladagskráin hefst sunnudaginn 6. desember klukkan 14. Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn kíkja í heimsókn og ræða við börnin um íslenska jólasiði. Pollapönkararnir Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason, einnig þekktir sem Heiðar og Halli úr Botnleðju, munu spila fyrir krakkana. Á Torginu er sýningin Sérkenni sveinanna, en þar má sjá jólahús með gripum sem tengjast jólasveinunum. Gripina má snerta og geta þeir hjálpað börnum að skilja nöfn jólasveinanna. Í forsal á 3. hæð safnsins verður jafnframt hægt að skoða gömul jólatré.

Fjölskyldur geta farið í hina sígildu ratleiki Þjóðminjasafnsins. Jólaleikurinn heitir Hvar er jólakötturinn? og snýst um að finna litlu jólakettina sem hafa verið faldir innan um safngripina! Fleiri fjölskylduleikir eru í boði.

Safnbúðin er full af þjóðlegum leikföngum, vönduðum minjagripum og bókum og kaffið í veitingastofunni Kaffitári er óviðjafnanlegt.

Þetta er þó aðeins upphafið á hinni líflegu jóladagskrá Þjóðminjasafnsins. Jólasveinarnir leggja af stað af fjöllum og sá fyrsti er væntanlegur klukkan 11 í Þjóðminjasafnið laugardaginn 12. desember. Síðan þramma þessir þjóðlegu náungar til byggða einn af öðrum og koma í Þjóðminjasafnið klukkan 11 á hverjum morgni fram að jólum. Á aðfangadag verður opið milli 11 og 12 til að taka á móti Kertasníki sem kemur síðastur.

Hin þjóðlega jóladagskrá Þjóðminjasafnsins hefur áunnið sér hefð og með árunum eignast allmarga aðdáendur í hópi yngra fólksins.

Sitthvað er einnig í boði fyrir fullorðna fólkið. 12. desember kl. 13:00 mun Árni Björnsson þjóðháttafræðingur fjalla um gamla og nýja jólasiði og uppruna þeirra og 19. desember kl. 13:00 mun Terry Gunnell þjóðfræðingur fjalla um íslenska jólasiði og kynna íslensku jólasveinana. Fyrirlesturinn er á ensku og er kynntur í samstarfi við The English Speaking Union.  

 Opið yfir jólin

Jólasveinar

Jólasiðir


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica