Jólasveinar

Jólasveinarnir þramma til byggða

Þeir heimsækja Þjóðminjasafnið klukkan 11 alla morgna 12.-24. desember, - einn í einu

Grýla og LeppalúðiÍslensku jólasveinarnir eru öldungis óskyldir hinum alþjóðlega rauðklædda Santa Claus sem er kominn af dýrlingnum Nikulási biskupi. Þeir eru af kyni trölla og voru upphaflega barnafælur.

Á þessari öld hafa þeir mildast mikið og klæða sig stundum í rauð spariföt, en geta samt verið þjófóttir og hrekkjóttir. Jólasveinarnir heimsækja Þjóðminjasafnið á hverjum degi síðustu þrettán dagana fyrir jól, einn í einu. Þá eru þeir klæddir þjóðlegu fötunum sínum og reyna að krækja sér í það sem þá langar helst í. Þessir hrekkjóttu pörupiltar eiga dálítið erfitt með að átta sig í tæknivæddri nútímaveröld en finnst gott að koma í Þjóðminjasafnið því þar er svo mikið af gömlum munum.

Stekkjarstaur kemur í Þjóðminjasafnið 12. desember klukkan 11

12. desember byrja gömlu jólasveinarnir að koma til byggða. Sá fyrsti heitir Stekkjarstaur og hér áður fyrr Stekkjarstaurreyndi hann oft að sjúga ærnar í fjárhúsunum hjá bændum.

Stekkjarstaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.

Giljagaur kemur í Þjóðminjasafnið 13. desember klukkan 11

13. desember kemur Giljagaur. Áður en mjaltavélar komu til sögu var hann vanur að laumast inn í fjós og Giljagaurstela froðu ofan af mjólkurfötum.

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

Stúfur kemur í Þjóðminjasafnið 14. desember klukkan 11

Jólasveinninn sem kemur til byggða 14. desember heitir Stúfur og er heldur lágur til hnésins. Hann var líka Stúfurkallaður Pönnuskefill, því hann reyndi að hnupla matarögnum af steikarpönnunni.

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.

 

Þvörusleikir kemur í Þjóðminjasafnið 15. desember klukkan 11

15. desember kemur Þvörusleikir ofan af fjöllum. Hann stalst til þess að sleikja þvöruna, sem potturinn var Þvörusleikirskafinn með. Hann reynir að finna þvörur í Þjóðminjasafninu, þegar hann kemur þangað í heimsókn.

Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.

 

Pottaskefill kemur í Þjóðminjasafnið 16. desember klukkan 11

16. desember má búast við Pottaskefli í heimsókn. Hann heitir líka Pottasleikir og situr um að komast í Pottasleikirmatarpotta, sem ekki er búið að þvo upp og sleikja skófirnar innan úr þeim.

Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku' upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti 'ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

 

Askasleikir kemur í Þjóðminjasafnið 17. desember klukkan 11

Askasleikir kemur 17. desember. Hann faldi sig undir rúmi og ef fólk setti ask á gólfið þá greip hann askinn og Askasleikirsleikti allt innan úr honum.

Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.

 

Hurðaskellir kemur í Þjóðminjasafnið 18. desember klukkan 11

Hurðaskellir kemur til húsa 18. desember. Hann gengur skelfing harkalega um og skellir hurðum svo fólk Hurðaskellirhefur varla svefnfrið.

Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér væran dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.

 

Skyrgámur kemur í Þjóðminjasafnið 19. desember klukkan 11

19. desember er von á jólasveini sem heitir Skyrgámur eða Skyrjarmur, af því að honum þótti svo gott skyr Skyrgámurað hann stalst inn í búrið og hámaði í sig skyrið upp úr keraldi.

Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o'n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

 

Bjúgnakrækir kemur í Þjóðminjasafnið 20. desember klukkan 11

Bjúgnakræki má búast við 20. desember. Honum þótti best að borða bjúgu og pylsur og stal þeim hvar sem Bjúgnakrækirhann komst í færi.

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

 

Gluggagægir kemur í Þjóðminjasafnið 21. desember klukkan 11

21. desember kemur hann Gluggagægir í heimsókn. Hann var ekki eins matgráðugur og sumir bræður hans, Gluggagægiren skelfing forvitinn að gægjast á glugga og jafnvel að stela leikföngum, sem honum leist vel á.

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

 

Gáttaþefur kemur í Þjóðminjasafnið 22. desember klukkan 11

22. desember má búast við Gáttaþef. Hann er með stórt nef, og honum finnst óskaplega góð laufabrauðs- og kökulyktin þegar verið er að baka fyrir jólin. Og svo reynir hann að hnupla einni og einni köku. 22. desember Gáttaþefurvar líka stundum kallaður hlakkandi, því þá voru börnin farin að hlakka svo mikið til jólanna.

Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

 

Ketkrókur kemur í Þjóðminjasafnið 23. desember klukkan 11

Á Þorláksmessu, 23. desember, kemur Ketkrókur, sem er svo sólginn í ket. Í gamla daga rak hann langan krókstaf niður um eldhússtrompinn og krækti sér í hangiketslæri sem héngu uppi í rjáfrinu eða hangiketsbita Ketkrókurupp úr pottinum, en þá var hangiketið soðið á Þorláksmessu.

Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

 

Kertasníkir kemur í Þjóðminjasafnið 24. desember klukkan 11

Kertasníkir kemur á aðfangadag, 24. desember. Í eldgamla daga voru kertin skærustu ljós sem fólk gat fengið. En þau voru svo sjaldgæf og dýrmæt að mesta gleði barnanna á jólunum var að fá sitt eigið kerti. Og aumingja Kertasníki langaði líka að eignast kerti. Opið er á aðfangadag milli 11 og 12 í Þjóðminjasafninu Kertasníkirsérstaklega til að taka á móti Kertasníki.

Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.

 

Ljóðin eru úr Jólassveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum.

Synir Grýlu og Leppalúða

Fyrir 20 árum bauð Þjóðminjasafn Íslands hinum "alvöru" íslensku jólasveinum í fyrsta skipti formlega í heimsókn fyrir jólin. Síðan þá hafa þeir verið fastagestir í desember. Fyrir nokkrum árum rann Grýlu til rifja hvað strákarnir voru tötralega til fara. Þegar Þjóðminjasafnið innti þá eftir þessu sögðust þeir reyndar eiga rauð spariföt sem þeir skiptust á að nota en væru samt í harðri samkeppni við ameríska "jólasveininn" eins og þeir kölluðu hann. Því fékk Þjóðminjasafnið íslenska hönnuði og handverksfólk til liðs við sig um að gera ný föt handa sveinunum svo þeir gætu litið sómasamlega út fyrir jólin. Í framhaldi af því fengu bæði þeir og foreldrar þeirra nýjan alklæðnað frá hvirfli til ilja, úr vaðmáli, gærum, flóka og íslenskri ull. Jólasveinarnir þjóðlegu koma því í Þjóðminjasafnið. Þeir eru vel klæddir og fötin þeirra íslensk yst sem innst.

Frekari upplýsingar um íslenska og erlenda jólasveina má finna á Vísindavefnum.


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica