Beint í leiðarkerfi vefsins.
Kynngimagnað andrúmsloft verður ríkjandi á Safnanótt 8. febrúar í Þjóðminjasafni Íslands. Opið hús verður frá klukkan 19 til 01 um nótt og ekkert kostar inn. Á dagskrá er bæði hryllingur og dulúð, - en einnig ýmislegt fagurt. Draugar og afturgöngur eru á ferli og opnaðar verða ljósmyndasýningar. Hátt lætur í hinni hrekkjóttu og þjóðlegu Skottu og Atli Rafn Sigurðarson leikari mætir á staðinn.
Lesa meira
Á safnanótt föstudaginn 23. febrúar verður glatt á hjalla í Þjóðminjasafni Íslands. Fólk úr nálægri og fjarlægri fortíð verður töfrað fram með leik, leiðsögn og tónlist og ýmsar persónur frá fyrri öldum fara á kreik milli klukkan 19 og 24.
Í Bogasalnum eys Arndís Árnadóttir listfræðingur úr viskubrunnum í líflegri leiðsögn um sýninguna Með silfurbjarta nál - spor miðalda í íslenskum myndsaumi klukkan 19:30 og 21.
Síðan færist fjör í leikinn svo um munar: hin ferska, frumlega, fjöruga og fornlega hljómsveit Spilmenn Ríkínís stígur fram á sviðið klukkan 20 og 22 og leikur undurfögur ævagömul lög á forn hljóðfæri svo sem symfón, langspil, saltara og bumbu.
Lesa meira
Dagskrá Þjóðminjasafns Íslands á Safnanótt, föstudagskvöldið 24. febrúar, verður fjölbreytt en Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík. Dagskráin ber yfirskriftina Falinn fjársjóður! Í tilefni Safnanætur er opið kl. 19:00 - 24:00 þetta kvöld. Ókeypis aðgangur.
Lesa meira
Um níu hundruð gestir hlýddu á frásögn og upplestur Árna Hjartarsonar um bein, drauga, skáld og sakamenn á safnanótt í Þjóðminjasafninu á föstudagskvöld. Mikil stemmning var í húsinu og voru gestirnir á öllum aldri.