Falinn fjársjóður á safnanótt 2006!
Dagskrá Þjóðminjasafns Íslands á Safnanótt 24. febrúar 2006
Dagskrá Þjóðminjasafns Íslands á Safnanótt, föstudagskvöldið 24. febrúar, verður fjölbreytt en Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík. Dagskráin ber yfirskriftina Falinn fjársjóður! Í tilefni Safnanætur er opið kl. 19:00 - 24:00 þetta kvöld. Ókeypis aðgangur.
Dagskrá Safnanætur á Þjóðminjasafni Íslands:
Kl. 19.30 og 21.30
Þórarinn Eldjárn rithöfundur segir frá nánum kynnum sínum af völdum og földum safngripum Þjóðminjasafnsins en Þórarinn ólst upp innan veggja safnsins.
Kl. 20.00 og 22.30
Leikrænn upplestur. Rúna K. Tetzschner sérfræðingur les upp úr skemmtilegum og sérstæðum svörum sem borist hafa þjóðháttasafni Þjóðminjasafnsins í gegnum árin.
Kl. 20.30 og 22.00
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður leiðir gesti um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins og staldrar við á völdum stöðum.
Kl. 21.00
Hrafnhildur Schram listfræðingur verður með leiðsögn um sýninguna Huldukonur í íslenskri myndlist.
Allt kvöldið
Hver er hvað og hvað er hvurs? Misgamlar ljósmyndir dregnar fram í dagsljósið og sýndar í Myndasal. Gestir búa til myndatexta, hver með sínu lagi. Gætu verið staðreyndir en líka minningar, skoðanir, ljóðlínur eða aðrar hugrenningar!
Lifandi tónlist og ljúffengar veitingar til sölu í Kaffitári!
Safnastrætó hefur viðkomu á Þjóðminjasafninu

