Sumardagurinn fyrsti
Gulmaðra

Blóm, brúður og blómálfar

Fimmtudaginn 23. apríl 2009 kl. 14-17

Á sumardaginn fyrsta verður Þjóðminjasafnið að vanda í sumarskapi. Dagskráin hefst klukkan 14 en opið hús er allan daginn 11-17 og ókeypis inn.

Klukkan 14 og 16 sýnir brúðuleikhúsið Mjallhvít fyrir börnin og í skemmtilegri listasmiðju verður hægt að útbúa höfuðskraut og annað sumarföndur.

Í tilefni dagsins verður sérstakur ratleikur, en þar á að finna blómin á safngripunum með aðstoð blómálfa.

Börn og fullorðnir geta svo líka fetað saman Fræðsluspor fjölskyldunnar í Þjóðminjasafninu, en það eru skemmtilegar leikjaþrautir sem má leysa um leið og grunnsýningin er skoðuð. Fræðslusporin má nálgast í afgreiðslunni ásamt hinum sívinsælu ratleikjum: Hvar eru dýrin? Hvar eru konurnar? Hvar eru beinin og tennurnar? og Hvar eru kynjaverurnar?

Sniðugar sumargjafir fást í Safnbúðinni og ljúffengar veitingar í veitingastofu safnsins, Kaffitári.

Dagskrá fyrri ára


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica