Lifandi leiðsögn

Barnaleiðsögn

Fyrsta sunnudag hvers mánaðar klukkan 15 er boðið upp á barnaleiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Leiðsögnin tekur um 40 mínútur og er sniðin sérstaklega að þörfum barna á aldrinum 6 til 11 ára. Starfsfólk safnfræðslu Þjóðminjasafnsins annast barnaleiðsögnina.

Lesa meira
 

Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 4. maí klukkan 15 verður í þriðja sinn boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Ferðalagið hefst í skipi landnámsmanna á 9. öld en útlínur þess má sjá á gólfinu þegar gengið er inn á grunnsýningu safnsins. ,,Siglt“ verður með börnunum gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar.

Lesa meira
 

Skrímsladagskrá

Í samvinnu við Þórbergssmiðju verður efnt til Skrímsladagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sunnudaginn 9. mars. Börnum er boðið í skrímsla- og kynjaveruratleik klukkan 12 og 13:30. Helga Einarsdóttir safnfræðslufulltrúi tekur á móti börnunum og spjallar um skrímsli. Síðan geta þau leitað að ófreskjum og kynjaverum í safninu og teiknað myndir af skrímslum í teiknihorni.

Lesa meira
 

Ausið úr viskubrunnum

Að þessu sinni mun Gunnar Karlsson sagnfræðingur verða með leiðsögn um grunnsýninguna sem hann kallar: Að lesa Íslandssögu úr grunnsýningu Þjóðminjasafnsins.
 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica