Saga daganna

Dymbilvika

Elsta íslenskt heiti vikunnar fyrir páska eða meginhluta hennar er „dymbildagar

Dymbildagana var klukkum ekki hringt við katólska guðþjónustu og þá voru ljós deyfð í kirkjunni við messu. Flestir hafa því tengt dymbil-heitin þessum sérkennum, þögn og myrkvun. Frá því seint á 19. öld hefur verið almennt álit að klukkum hafi í fyrndinni verið hringt með trékólfum, dymblum, í þessari viku, en sú skýring reynist röng. Líklegt er að orðið dymbill sé upprunalega hljóðlíking og þjóðskýring á „tinnibulum" og ámóta orðum um tréskellur eða klöprur sem um dymbildaga voru notaðar í stað klukkna og bjallna við guðþjónustu.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica