Saga daganna

8. júlí - Seljumannamessa

Seljumannamessa er 8. júlí. Hún er haldin til minningar um píslardauða heilagrar Sunnevu og írskra einsetumanna með henni á eynni Selju í Noregi.

Dagurinn var aldrei sérlegur helgidagur hérlendis. Seljumannamessa varð þó á 18. öld mun umtalaðri en áður eftir að samkomudagur alþingis var með nýja stíl árið 1700 fluttur til 8. júlí.


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica