Skólahópar
Heimsókn í Þjóðminjasafnið
Skólaheimsóknir eru þungamiðja fræðslustarfs Þjóðminjasafnsins. Safnfræðslan býður upp á skipulagðar heimsóknir sniðnar að námsskrá annars hvers árgangs frá fjögurra ára leikskólabörnum. Í leiðsögnunum er athyglinni beint að ákveðnum hlutum grunnsýningarinnar.
Kennarar og leiðbeinendur geta auk þess heimsótt safnið "á eigin vegum" og til að auðvelda þeim það hafa verið útbúnar handhægar leiðsagnir til útprentunar.
Leiðsagnirnar geta einnig nýst öðrum sem vilja sjálfir stýra hópum um grunnsýninguna og sérsýningar.

