Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í september 2009 var opnuð ný ljósmyndasýning á Þjóðminjasafninu sem ber titilinn Óþekkt augnablik. Á sýningunni eru ljósmyndir frá völdum ljósmyndurum en allar eiga myndirnar þó það sameiginlegt að einstaklingar og staðir eru óþekktir. Gestir fá á sýningunni tækifæri til að skrá niður upplýsingar ef þeir þekkja myndefnið. Boðið er upp á sérstaka fræðslu fyrir 4. - 6. bekk í tengslum við sýninguna þar sem unnið er út frá þjóðháttum fyrri tíma á Íslandi. Hafa þarf samband við safnfræðslu til að panta tíma á kennsla@thjodminjasafn.is. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast verkefni í tengslum við sýninguna sem nýst gæti vel við kennslu samfélagsgreina í grunnskólum.
Í lok ágúst 2008 var opnuð sýning á úrvali gripa sem bárust Þjóðminjasafninu árið 2007. Er þetta önnur sýning í sýningarröð sem kallast Ný aðföng sem hefur það að markmiði að kynna fyrir gestum safnsins það mikla og fjölbreytta úrval sem berst safninu á hverju ári. Gripirnir á sýningunni eru fjölbreytilegir, bæði nýir og gamlir, og sýna hvernig lesa má hægt er að lesa úr gripum breytingar sem verða í samfélagi, tísku og tækni. Hvetjum við kennara til að koma með nemendur sína á sýninguna sem er afar fróðleg. Bjóðum við einnig upp á verkefni sem hefur verið sérstaklega útbúið í tengslum við sýninguna og er miðað við 6.-8.bekk grunnskóla. Einnig fylgja með kennsluleiðbeiningar. Nálgast má verkefnin hér að neðan og í afgreiðslu safnsins.
Ný aðföng-verkefni til útprentunar
Kennurum er bent á að láta vita af komu á kennsla@thjodminjasafn.is eða í síma 530-2200. Heimsóknin er hópum að kostnaðarlausu.
Verkefni fyrir 8.-10. bekk
Á sýningunni Á efsta degi á Þjóðminjasafni Íslands má sjá átján fjalabrot frá upphafi 12. aldar. Talið er að fjalirnar hafi upphaflega verið hluti af býsanskri dómsdagsmynd í dómkirkjunni á Hólum sem Jón Ögmundsson biskup lét byggja í kringum árið 1106 sem sýndu dómsdag kristinna manna. Fjalirnar fundust á 19.öld og voru þá notaðar sem árefti á bænum Bjarnastaðahlíð og voru áður í Flatatungu.
Verkefni fyrir 4.-6. bekk
Í tengslum við litla sýningu um nýjustu gripina í eigu Þjóðminjasafnsins bjóðum við nemendum í 4., 5. og 6. bekk að koma og skoða sýninguna jafnframt því að leysa skemmtileg verkefni og velta fyrir sér ýmsum forvitnilegum þáttum safnastarfsins. Sýningin er staðsett við enda 2. hæðar.
Verkefnið er í þremur hlutum. Fyrsti hlutinn eru tillögur að umræðuefnum til að undirbúa heimsóknina. Annar hlutinn á sér stað í safninu þar sem börnin fá tvö verkefni til að glíma við. Þriðji hlutinn er svo aftur í skólanum og / eða á heimilum eftir að heimsókn lýkur.
Hlutarnir eru ekki endilega samhangandi þannig að hægt er að taka úr verkefninu það sem best hentar.
Kennurum er bent á að láta vita af komu á kennsla@thjodminjasafn.is eða í síma 530 2200. Vakin er athygli á því að þessir hópar eru á eigin vegum en verkefni má nálgast í afgreiðslu og á heimasíðu. Heimsóknin er hópum að kostnaðarlausu.
Lesa meiraÁ sýningunni Með silfurbjarta nál voru sýnd útsaumuð handaverk listfengra kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin var afrakstur rannsókna Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings sem lengi starfaði við Þjóðminjasafnið og rannsakaði íslenskan myndsaum á miðöldum. Með sýningunni voru framleidd kort þar sem nokkrar saumgerðir voru kenndar þ.á.m. refilsaumur. Úrbúin voru verkefni fyrir yngri bekki aðgengileg á netinu. Hér má lesa meira um sýninguna sjálfa. Nemendur Myndlistarskólans unnu einnig listaverk í tengslum við sýninguna og var afraksturinn settur á sýningu á Torginu í andyri Þjóðminjasafnsins.
Hollenski ljósmyndarinn Rob Hornstra sagði: „Frá mínum sjónarhóli er ekkert rómantískt eða dularfullt við Ísland. Hvert land hefur sín sérkenni og Ísland líka en ég hef aldrei haldið að Ísland væri sérstakara en önnur lönd.“ Rob Hornstra var einn sex þátttakenda í evrópsku ljósmyndaverkefni á vegum International Photography Research Network við háskólann í Sunderland í Englandi, en Þjóðminjasafn Íslands var samstarfsaðili að verkefninu árið 2005.
Lesa meira