Á döfinni

HönnunnarMars 2010

HönnunarMars í Þjóðminjasafni Íslands

Dagana 18. - 21. mars stendur Hönnunarmiðstöð íslands öðru sinni fyrir HönnunarMars sem er fjögurra daga hátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Þjóðminjasafn Íslands tekur þátt í HönnunarMars að þessu sinni með sýningunni Vendum okkar kvæði í kross og fyrirlestri um hönnun, skapandi hugsun í hönnunarferlinu og árangursríkar hönnunaraðferðir. Lesa meira
 
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tekur við Eddunni í Þjóðminjasafni Íslands.

Eddan komin í Þjóðminjasafn Íslands

Íslenska þjóðin hlaut heiðursverðlaun íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2010 við afhendingu Edduverðlaunanna laugardaginn 27. febrúar s.l. Styttan er nú til sýnis í anddyri Þjóðminjasafnsins þar sem verðlaunahafar - Íslendingar allir - geta skoðað hana og tekið myndir af sér með gripinn. Lesa meira
 

Kreppan, hrunið og búsáhaldabyltingin

Þjóðminjasafn Íslands vinnur nú að söfnun heimilda um kreppuna, hrunið og búsáhaldabyltinguna. Af þessu tilefni hefur verið tekin saman spurningaskrá sem send er út um þessar mundir. Lesa meira
 

Góa

Mánuðurinn góa hefst nú sunnudag frá 18. til 24. febrúar, en 8. til 14. febrúar í gamla stíl fyrir 1700. Nafnið, góa eða gói, er þekkt úr elstu heimildum og afbrigði þess í öðrum norrænum tungum. Gói er persónugerð sem vetrarvættur í gömlum sögnum, og dóttir Þorra.
Lesa meira
 
Gásaborðið

Endurfundir

Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna!

Ákveðið hefur verið að framlengja sýninguna Endurfundi. Sýningunni er ætlað að höfða til allra aldurshópa en á henni má sjá fjölda gripa sem fundust við fornleifarannsóknirnar á árunum 2001-2005.

Lesa meira

 

Rannsóknarstaða í nafni dr. Kristjáns Eldjárns laus til umsóknar

Við Þjóðminjasafn Íslands er sérstök rannsóknarstaða til rannsókna á sviði þjóðminjavörslu, tengd nafni dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Lesa meira
 

Tónleikar

Laugardaginn 19. desember kl. 15 mun Háskólakórinn syngja jólalög og þjóðlegar vísur fyrir gesti Þjóðminjasafnsins. Lesa meira
 

Ripp rapp rúrí

Viltu vera mem? Eigum við að koma í ripp rapp rúrí eða sí sí kom pleimó? Hvaða leikir finnast börnum skemmtilegir? Hvaða hlutverki gegna leikföng í leikjum þeirra heima eða í skólanum? Þetta er meðal þeirra spurninga sem reynt verður að svara í verkefninu Samtímasöfnun - leikir barna. Lesa meira
 
Strandakirkja

Þjóðháttasöfnun um áheit og trú tengd kirkjum


Þjóðminjasafn Íslands vinnur um þessar mundir að söfnun heimilda um áheit og trú tengd kirkjum. Söfnunin er samvinnuverkefni við námsbraut í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Margaret Jean Cormack trúarbragðafræðing. Af þessu tilefni hefur verið tekin saman spurningaskrá sem send verður út á næstunni. Ekki hefur áður verið safnað sérstaklega upplýsingum um þetta efni.

Lesa meira

 
Krysuvikurkirkja

Krýsuvíkurkirkja eldi að bráð

Eldur kom upp í Krýsuvíkurkirkju aðfaranótt 2. janúar 2010. Slökkvilið Grindavíkur var kallað út laust eftir klukkan tvö en leiðin úr Grindavík í Krýsuvík er ekki auðfarin á þessum árstíma og var slökkviliðið um hálftíma að Krýsuvíkurkirkju. Þegar slökkviliðsmennirnir komu á vettvang var kirkjan fallin og gátu þeir ekki gert annað en að slökkva í glæðunum. Tankbíll með vatn var fenginn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði. Þjóðminjavörður og fulltrúar Húsafriðunarnefndar ríkisins skoðuðu aðstæður í kjölfar brunans.

Lesa meira
 

Norður: Íslensk börn ímynda sér Norðrið

Í tilefni af útkomu bókarinnar Norður: Íslensk börn ímynda sér Norðrið verður samnefnd sýning opnuð á Torginu í Þjóðminjasafni Íslands föstudaginn 13. nóvember. Sýningin er sett upp í samvinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík og mun standa til 29. nóvember 2009.
Lesa meira
 
Foldarskart

Foldarskart

Fimmtudagin 15. október verður sýningin Foldarskart opnuð í Þjóðminjasafni Íslands.
Á sýningunni má sjá ýmis verk Hörpu Jónsdóttur, en hún sigraði nýverið í keppninni “Þúsund frábærar húfur”, eða “1000 Fabulous Knit Hats” á vegum útgáfufélagsins Rockport Publishers.
Lesa meira
 

Leiðsögn á pólsku

MUZEUM NARODOWE (ÞJÓÐMINJASAFNIÐ) ZAPRASZA

Sunnudaginn 8. nóvember verður boðið upp á leiðsögn á pólsku um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins Þjóð verður til - saga og menning í 1200 ár.
Leiðsögnin hefst kl. 14:00 og er áhugasömum að kostnaðarlausu.

 

Islandzkie Muzeum Narodowe zaprasza 8 listopada wszystkich Polaków na zwiedzanie wystawy głównej z polskim przewodnikiem o godzinie 14-tej.
Muzeum mieści się przy ulicy Suðurgata 41 (budynek przy rondzie z Hringbraut).

Wstęp bezpłatny.

Serdecznie zapraszamy

 
Kvikskynjun

Kvikskynjun

Torgið 29. ágúst - 11. október 2009

Sýning á verkum blindra og sjónskertra barna úr Myndlistaskólanum í Reykjavík. Lesa meira
 

Menningarminjadagur Evrópu 2009

Torfhús í fortíð og nútíð

Tilgangur Evrópska menningarminjadagsins er að vekja athygli alls almennings á gildi menningararfsins og að skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Þema Íslands í ár eru torfhús í fortíð og nútíð. Húsasafn Þjóðminjasafns Íslands varðveitir fjölda torfbæja út um allt land og verður opið hús í Glaumbæ, Laufási, Víðimýrarkirkju og á Bustarfelli í tilefni dagsins. Lesa meira
 

Menningarnótt 2009

Þjóðminjasafn Íslands - Hús með sögu og sál

Að vanda verður mikið um að vera í Þjóðminjasafninu á Menningarnótt. Meðal þess sem boðið verður upp á listasmiðja fyrir börnin, tónlist, leiðsögn og margt fleira. Lesa meira
 

Alrún

Torgið 26. júní - 9. ágúst 2009

Bandrúnir Lesa meira
 
gullhringur

Gullhringur frá Þingvöllum

Gullhringur sem fannst nýverið á Þingvöllum er nú til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands. Lesa meira
 

Gamli bærinn á Keldum opinn gestum í sumar

Á Keldum á Rangárvöllum er varðveitt einstök heild bæjar- og útihúsa frá fyrri tíð. Gestum gefst kostur á að skoða gamla bæinn alla daga frá 10-17. Lesa meira
 

Skotthúfan mín

Ást á arfleiðinni

Föstudaginn 29. maí kl. 14 verður opnuð á Torgi Þjóðminjasafnsins sýning helguð skotthúfum að fornu og nýju. Lesa meira
 
icom_ceca

ICOM/CECA 09

Máttur safnfræðslu í alþjóðlegu samhengi, áherslur og framkvæmd

ICOM/CECA (Alþjóðaráð safna og nefndar um fræðslu og menningarviðburði) heldur árlega ráðstefnu sína í Reykjavík dagana 5.-10. október 2009. Lesa meira
 
Nemendur Öskjuhlíðaskóla

Landnám Íslands

Torgið 30. apríl - 25. maí 2009

Landnám Íslands séð með augum nemenda 8. bekkjar í Öskjuhlíðarskóla. Lesa meira
 
Mynd-6

Þrælkun eða þroskandi vinna?

Laugardaginn 9. maí kl. 10-13

Málþing um vinnu barna á vegum Þjóðminjasafnsins og Unicef á Íslandi. Lesa meira
 
Gulmaðra

Blóm, brúður og blómálfar

Fimmtudaginn 23. apríl 2009 kl. 14-17

Á sumardaginn fyrsta verður Þjóðminjasafnið að vanda í sumarskapi. Dagskráin hefst klukkan 14 en opið hús er allan daginn 11-17 og ókeypis inn. Lesa meira
 
vedurspar

Alþýðlegar veðurspár og veðurþekking

Þjóðminjasafn Íslands sendir um þessar mundir frá sér spurningaskrá um alþýðlegar veðurspár og veðurþekkingu. Söfnunin er samvinnuverkefni við námsbraut í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Eirík Valdimarsson meistaranema í þjóðfræði. Lesa meira
 

HönnunarMars

Dagana 26. - 29. mars standa yfir hönnunardagar á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Þjóðminjasafn Íslands tekur virkan þátt í hátíðinni, m.a. með fyrirlestrum og sýningu. Lesa meira
 
Barbara

Heilög Barbara

Gripur mánaðarins - mars 2009

Við fornleifauppgröft í Skriðuklaustri sem stóð frá 2003-2007 fannst líkneski af heilagri Barböru. Á sýningunni Endurfundir sem opnuð var í Þjóðminjasafni Íslands í janúar 2009 má sjá líkneskið, auk annarra gripa sem fundist hafa við fornleifarannsóknir sem fram fóru á mörgum stöðum á landinu á árunum 2001-2005.

Lesa meira
 
Tor_Magnusson

Áttu forngrip í fórum þínum?

Sunnudaginn 8. mars kl. 14-16 býðst gestum að koma með gamla muni í skoðun og greiningu í Þjóðminjasafn Íslands. Þetta er í fjórða sinn sem sérfræðingar safnsins taka á móti fólki á þennan hátt, en á fyrri greiningardögum hefur margt forvitnilegt komið í ljós. Lesa meira
 
buningar

Þjóðbúningadagur

7. mars kl. 15:00

Laugardaginn 7. mars verður þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands. Lesa meira
 
Andlit

Endurfundir

Myndasalur 31. janúar-30. nóvember 2009

Þann 31. janúar var sýningin Endurfundir opnuð í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Lesa meira
 

Þrælkun, þroski, þrá?

Bogasalur 21. febrúar - 6. september 2009

Sýning á ljósmyndum úr Ljósmyndasafni Íslands af ungum börnum við fiskvinnu ýmist á sjó eða landi á árunum 1930-1950. Lesa meira
 

7-9-13

Hjátrú á Þjóðminjasafninu á Safnanótt 2009.

Föstudaginn 13. febrúar verður Safnanótt. Á Þjóðminjasafni Íslands verður þema kvöldsins hjátrú. Lesa meira
 
hani

Yfir hafið og heim

Íslenskir munir frá Svíþjóð

Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna Yfir hafið og heim - íslenskir munir frá Svíþjóð í Þjóðminjasafninu. Sýningin stendur til 31. janúar. Lesa meira
 
Gluggagægir

The Icelandic Yule

Laugardaginn 20. desember klukkan 13:00 flytur dr. Terry Gunnell fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands um gömlu íslensku jólin. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku og nefnist The Icelandic Yule: An illustrated presentation in English.

Lesa meira
 
Leppalúði, Grýla og börnin í Þjóðminjasafninu

Lifandi jóladagskrá og jólasýning fyrir börnin 2008

Jólasveinarnir koma í Þjóðminjasafnið

Margt er um að vera í Þjóðminjasafni Íslands og desember er einn viðburðaríkasti mánuður ársins.

Hægt er að senda vinum og vandamönnum rafrænt jólakort.

Lesa meira
 

Þjóðin, landið og lýðveldið

Vigfús Sigurgeirsson, ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður.

forseti-Keflavik1944cSýning á ljósmyndum og kvikmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá 1936-1960.

Lesa meira
 

Sjónabók úr Suðurgötu

1. - 30. nóvember 2008

Sýning á verkum Ingibjargar Styrgerðar Haraldsdóttur. Lesa meira
 

Lúka Design - innsetning

27. september - 12. október 2008

Prjónahönnun eftir systurnar Brynhildi og Gunnhildi Þórðardætur á Torgi Þjóðminjasafnsins.

Lesa meira
 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.