Endurfundir
Myndasalur 31. janúar-30. nóvember 2009
Kristnihátíðarsjóður styrkti fornleifauppgröft á Gásum, Hólum, Keldudal, Kirkjubæjarklaustri, Reykholti, Skálholti, Skriðuklaustri og Þingvöllum.
Á sýningunni verður úrval af þeim fjölmörgu munum sem fundist hafa við þessa uppgrefti.
Í tengslum við sýninguna kemur út vegleg sýningarbók.
Kristnihátíðarsjoður var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt: Annars vegar er honum ætlað að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn. Hins vegar er hlutverk sjóðsins að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar.
Frekari upplýsingar um sýninguna má fá á sérvef hennar.

