Þjóðbúningadagur
7. mars kl. 15:00
Gestir eru hvattir til að mæta á þjóðbúningi til að sýna sig og sjá aðra. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eiga búning til að nota hann og jafnframt fyrir alla sem eru áhugasamir um íslenska þjóðbúninga að koma og sjá fjölbreytni búninganna. Aðstaða verður til myndatöku fyrir þá sem hafa áhuga á að taka myndir af fólki á mismunandi búningum. Nýbúar eru sérstaklega hvattir til að mæta á þjóðbúningi síns heimalands. Aðgangur er ókeypis fyrir alla sem mæta í safnið á þjóðbúningi.
Í Kaffitári verða þjóðlegar veitingar á boðstólum og sérstakt tilboð á bakkelsi fyrir þá sem mæta á búningi.
Að Þjóðbúningadeginum standa Heimilisiðnaðarfélag Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Þjóðdansafélag Reykjavíkur, Þjóðbúningaráð og Þjóðbúningastofa og munu framangreindar stofnanir og félög kynna starfsemi sína.
Við sama tækifæri mun Karl Aspelund leita heimilda fyrir doktorsverkefni sitt við Bostonháskóla í Bandaríkjunum, en það fjallar um hvernig nútímakonan notar þjóðbúninginn. Karl verður á staðnum og vill eiga stutt spjall við sem flesta.
Á heimasíðu sinni greinir Karl betur frá verkefninu og þar geta áhugasamir einnig aðstoðað við rannsókninga.

