Á döfinni
Gullhringur frá Þingvöllum
Gullhringur sem fannst nýverið á Þingvöllum er nú til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands.
Í tilefni af 150 ára afmæli Þingvallakirkju standa yfir lagfæringar á kirkjunni og umhverfi hennar. Fornleifafræðingur hefur haft eftirlit með jarðvegsskipum vegna stéttar að kirkjunni. Mikið magn af gripum hefur komið fram þar og þeirra merkastur er innsiglishringur úr gulli sem fannst milli hellna fyrir framan kirkjuna. Hringurinn er nú til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands.

