Á döfinni
Strandakirkja

Þjóðháttasöfnun um áheit og trú tengd kirkjum


Þjóðminjasafn Íslands vinnur um þessar mundir að söfnun heimilda um áheit og trú tengd kirkjum. Söfnunin er samvinnuverkefni við námsbraut í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Margaret Jean Cormack trúarbragðafræðing. Af þessu tilefni hefur verið tekin saman spurningaskrá sem send verður út á næstunni. Ekki hefur áður verið safnað sérstaklega upplýsingum um þetta efni.

Áheit voru mjög algeng í kaþólskum sið hér á landi og hafa einnig þekkst í töluverðum mæli á síðari öldum. Mikið hefur verið heitið á kirkjur og er Strandarkirkja þeirra langþekktust í dag. Helstu áheitastaðir fyrr á tímum voru Kaldaðarnes og Skálholt. Þar að auki var eða er heitið á helga menn, ákveðnar persónur, góð málefni og fleira. Þá tengdist trú af ýmsu tagi sjálfum kirkjuhúsunum. Sumum þeirra mátti t.d. ekki læsa og aðrar voru látnar standa opnar í verndarskyni.

Þjóðminjasafnið hefur áhuga á að ná til fólks sem býr yfir upplýsingum um áheit og trú tengd kirkjum og er það beðið um að hafa samband við safnið í síma 530 2200 eða að senda tölvupóst á netfangið agust@thjodminjasafn.is. Þjóðminjasafnið vill hvetja menn til að leggja söfnuninni lið og varðveita þannig mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum. Með spurningaskránni er leitast við að ná til sem breiðasts hóps í öllum landshlutum, jafnt karla sem kvenna.

Unnt er að sækja spurningaskrána hér og senda svör í tölvupósti.

Nauðsynlegt er að vista skrána áður en henni verður svarað.

Vinsamlegast prentið einnig út og skrifið undir yfirlýsingu heimildarmanns og sendið Þjóðminjasafni Íslands, Suðurgötu 43, 101 Reykjavík. Unnt er að fá umslög hjá safninu sem setja má ófrímerkt í póst.

Þjóðminjasafn Íslands hefur í um hálfa öld safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám. Spurt hefur verið um lífshætti, siði og venjur fyrr á tímum en í seinni tíð hefur söfnunin einnig beinst að samtímanum. Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og slegin inn í stafrænan gagnagrunn. Aðgangur að grunninum er þó takmarkaður og háður sérstöku leyfi.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica