Á döfinni

Foldarskart

Foldarskart

Fimmtudagin 15. október verður sýningin Foldarskart opnuð í Þjóðminjasafni Íslands.
Á sýningunni má sjá ýmis verk Hörpu Jónsdóttur, en hún sigraði nýverið í keppninni “Þúsund frábærar húfur”, eða “1000 Fabulous Knit Hats” á vegum útgáfufélagsins Rockport Publishers.

Íslensk náttúra hefur veitt Hörpu Jónsdóttur innblástur við gerð verka sinna. Fíngerður smágróður, fjörusteinar og birtan við hafið endurspeglast í hlutum sem eru fínlegir og grófgerðir í senn.

Verkin á sýningunni eru flest unnin á árunum 2008-2009. Þau eru öll úr þæfðri íslenskri ull og útsaumuð ýmist með bómull eða hörþræði.

Harpa er kennari, rithöfundur og áhugaljósmyndari. Hún hefur fengist við hannyrðir og textílvinnu frá barnæsku. Hún hefur sýnt verk sín í heimabyggð en þetta er fyrsta sýning hennar í höfuðstaðnum.



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.