Á döfinni
Norður: Íslensk börn ímynda sér Norðrið
Í tilefni af útkomu bókarinnar Norður: Íslensk börn ímynda sér Norðrið verður samnefnd sýning opnuð á Torginu í Þjóðminjasafni Íslands föstudaginn 13. nóvember. Sýningin er sett upp í samvinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík og mun standa til 29. nóvember 2009.
ReykjavíkurAkademían og kanadíska háskólaútgáfan Presses de l'Université du Québec koma að útgáfu bókarinnar. Hún kemur út á þremur tungumálum í ritröðinni Imagoborealis, sem er ætlað er varpa ljósi á og túlka hinar margvíslegu táknmyndir Norðursins, vetrarins og Norðurheimskautsins. Ritstjórar eru Daniel Chartier og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, sem skrifar formála.

