Endurfundir
Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna!
Ákveðið hefur verið að framlengja sýninguna Endurfundi. Sýningunni er ætlað að höfða til allra aldurshópa en á henni má sjá fjölda gripa sem fundust við fornleifarannsóknirnar á árunum 2001-2005.
Auk gripanna er hægt að skoða myndasýningar frá uppgröftunum, leira, stimpla eða fara í fræðsluspor fjölskyldunnar og leysa skemmtilegar þrautir. Einnig er boðið upp á leynikassa sem eru skemmtilegir fyrir yngstu gestina - og jafnvel þá sem eldri eru! Sýningatexta og hljóðleiðsögn samdi Pétur Gunnarsson, en textarnir veita skemmtilega innsýn í hugarheim fólks á öldum áður.Á árunum 2001-2005 styrkti Kristnihátíðarsjóður fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar. Á sýningunni má sjá úrval þeirra gripa sem fundist hafa hingað til á átta þessarra staða, en mörgum rannsóknanna er enn ólokið. Kristnihátíðarsjóður var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins var annars vegar að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn og hins vegar að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar.
Á vefsvæði sýningarinnar er hægt að fræðast frekar um sýninguna og rannsóknirnar, fara í ýmsa leiki og kynna sér forvörslu gripanna sem eru á sýningunni.

