Á döfinni
Tónleikar
Laugardaginn 19. desember kl. 15 mun Háskólakórinn syngja jólalög og þjóðlegar vísur fyrir gesti Þjóðminjasafnsins.
Háskólakórinn hefur verið starfræktur síðan 1972 og er kórinn alla jafna skipaður stúdentum við Háskóla Íslands. Í kórnum er mikill metnaður í flutningi verka, en hann heldur að minnsta kosti eina tónleika á ári auk þess að syngja við útskriftir og ýmsar aðrar athafnir Háskólans. Stjórnandi Háskólakórsins er Gunnsteinn Ólafsson og eru meðlimir í dag rúmlega sextíu talsins úr vel flestum deildum háskólans.
Háskólakórinn syngur tónlist af ýmsu tagi en yfirleitt er lögð aðaláhersla á íslenska tónlist og á hverju ári er frumflutt eitt verk eftir íslenskt tónskáld.

