Á döfinni
HönnunnarMars 2010

HönnunarMars í Þjóðminjasafni Íslands

Dagana 18. - 21. mars stendur Hönnunarmiðstöð íslands öðru sinni fyrir HönnunarMars sem er fjögurra daga hátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Þjóðminjasafn Íslands tekur þátt í HönnunarMars að þessu sinni með sýningunni Vendum okkar kvæði í kross og fyrirlestri um hönnun, skapandi hugsun í hönnunarferlinu og árangursríkar hönnunaraðferðir.

HönnunarMars er ætlað að vekja athygli á umfangi og gæðum íslenskrar hönnunar hjá almenningi, fjölmiðlum og stjórnvöldum. Íslenskir hönnuðir hafa verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár sem sést í þeirri miklu grósku sem er í íslenskri hönnun í dag.

Árangursrík hugmyndahönnunFyrirlestur

Föstudaginn 19. mars kl. 15 mun Nils Wiberg hugmyndahönnuður hjá Gagarín fjalla um hönnun, skapandi hugsun í hönnunarferlinu og árangursríkar hönnunaraðferðir. Nils útskrifaðist með Msc gráðu í gagnvirkri hönnun (Interaction Design) frá háskólanum í Umeå í Svíþjóð árið 2009 og hefur starfað hjá Gagarín síðan.

Vendum okkar kvæði í krossVendum okkar kvæði í kross

Í Kaffitári og á Torgi Þjóðminjasafnsins verða nokkur verk hönnuða Textílfélagsins til sýnis. Þar má sjá ýmsa gripi sem hannaðir voru með notagildi í huga, t.d. hljóðdempun, gardínur, snaga, dúka, diskamottur, stóla, pullur og púða. Afrakstur hulsugerðar utan um heit götumál Kaffitárs verða einnig til sýnis en hann lýsir fjölskrúðugum hópi í Textílfélaginu.

Á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvarinnar
má nálgast frekari upplýsingar um þá fjölbreyttu dagskrá sem er í boði á HönnunarMarsi 2010.


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica