Árlegir viðburðir
Jólatré í Þjóðminjasafninu

Hátíðir í Þjóðminjasafni Íslands

Fjórir viðburðir haldnir í tengslum við vissa daga eða menningarhátíðir

Þjóðminjasafnið efnir árlega til fjögurra stórra viðburða eða hátíða í tengslum við vissa daga eða ákveðnar menningarhátíðir í Reykjavík. Þetta eru safnanótt sem haldin er í tengslum við vetrarhátíð í Reykjavík, sumardagurinn fyrsti, menningarnótt og jóladagskráin. Hver um sig skipar mikilvægan sess í ársdagskrá safnsins.

Á þessum dögum er blásið til menningar- og listaveislu í Þjóðminjasafninu og sýningarsalirnir fyllast af lífi. Meðal þess sem verið hefur á dagskrá má nefna tónlist, söng, upplestur, dans, föndur, listasmiðjur, leiki, leiklist og leiðsögn, ef ekki allt í senn, og oftast með þátttöku gesta.


 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica