Opið

Þjóðminjasafn Íslands

Almennt opið

Sumar (1. maí - 15. september)

Alla daga vikunnar kl. 10-17.

Vetur (16. september - 30. apríl)
Alla daga vikunnar nema mánudaga klukkan 11-17.

Safnbúðin er opin á sama tíma og safnið á veturna.

Veitingastofan Kaffitár er yfir sumarið opin á sama tíma og safnið en á veturna klukkan 9-17 frá þriðjudegi til föstudags en klukkan 11-17 um helgar.

 

Þjóðminjasafn Íslands

Opið um hátíðar

Páskar
Lokað á páskadag og á annan í páskum en opið aðra daga 11-17.
Jól
Í desember er opið alla daga nema mánudaga klukkan 11-17.

14. og 21. desember 2009 (mánudagar) er opið 11-12 til að taka á móti jólasveinum.

Á aðfangadag er einnig opið 11-12 vegna Kertasníkis sem kemur síðastur.
Lokað er á jóladag, gamlársdag og nýjársdag en aðra daga er opið eins og venjulega 11-17.

 

Þjóðminjasafns Íslands

Skrifstofur

Þjóðminjasafnið, Suðurgötu 41

Opið: Alla virka daga klukkan 9-16.

Auk sýningarsala, safnbúðar, veitingastofu og fyrirlestrarsals eru skrifstofur miðlunarsviðs Þjóðminjasafnsins í turni Safnhússins.

Setberg, Suðurgötu 43 (áður jarðfræðahús Háskóla Íslands):

Opið: Alla virka daga klukkan 8-16.

Á 1. hæð Setbergs eru skrifstofa þjóðminjavarðar og og skrifstofur fjármála- og þjónustusviðs. Á 2. hæð er Bóka- og heimildasafn Þjóðminjasafnsins og á 3. hæð er sá hluti rannsókna- og varðveislusviðsins sem snýr að Þjóðháttasafni, Húsasafni og Fornleifum. Þar hafa einnig aðstöðu fræðimenn sem sinna ýmsum sérverkefnum.

Í Setbergi eru til sýnis ljósmyndir sérvaldar úr sýningum safnsins frá síðustu árum.

Bóka- og heimildasafn: Opið alla virka daga klukkan 13-16.

 

Vesturvör 16-20, Kópavogi:
Opið: Alla virka daga 9-16.

Í Vesturvör 16-20 eru geymslur Munasafns og Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafninu. Þar eru jafnframt skrifstofur Munasafns, Ljósmyndasafns, Skráningar og Forvörslu.

 

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.