Vandað vöruúrval í safnbúð Þjóðminjasafnsins
Enginn ætti að láta hjá líða að líta við í Safnbúð Þjóðminjasafnsins. Safnbúðin býður upp á vandað og einstætt vöruval. Hún er óaðskiljanlegur hluti Þjóðminjasafnsins og gegnir mikilvægu hlutverki við miðlun þess á sögu og minjum. Safnbúðin stendur fyrir sérhæfðri minjagripaframleiðslu þar sem hugmyndir eru sóttar í safnkost og sérsýningar safnsins og handverskhefð íslendinga fær að njóta sín í fallegri vöru. Í safnbúðinni fást vandaðir munir fyrir fullorðna, leikföng og annað sem gleður börnin, vandað úrval sérfræðirita Þjóðminjasafnsins og bóka fyrir börn og fullorðna auk og margt fleira.Minjagripir Þjóðminjasafnsins
Safnbúðin framleiðir minjagripi, leikföng og gjafavöru þar sem fer saman ný og fersk hönnun og fræðilegt gildi. Samstarf Þjóðminjasafnsins við hönnuði hafa getið af sér einstaka muni sem eiga það sameiginlegt að færa gripi, ljósmyndir, myndlist og handverk safnsins í nútímalegan og fallegan búning. Þar öðlast 1200 ára menningarsaga Íslands nýja vídd sem aðgengileg er bæði ungum og öldnum gestum safnsins.
Gömul ljósmynd af litlum stúlkum í skautbúningi, upphlut og húfubúningi öðlast nýtt líf utan á umbúðum af súkkulaðiplötum, en súkkulaðisería safnbúðarinnar hefur þegar fest sig í sessi hjá viðskiptavinum hennar. Hróður súkkulaðisins hefur borist út fyrir dyr Þjóðminjasafnsins því árið 2006 fékk Snæfríð Þorsteinsdóttir, hönnuður umbúðanna, Hönnunarverðlaun Félags íslenskra teiknara í flokki umbúða.
Börnin eru ekki undanskilin í framleiðslu safnbúðarinnar og þar má nefna minnisspil og púsl með myndum af gripum safnsins sem eru tilvaldar gjafir handa börnum. Fallegar litabækur færa gömul munstur og fagurfræði úr gömlum klæðum í eigu safnsins í form sem nútímabörn geta auðveldlega nálgast. Þetta og margt fleira er skemmtileg minning fyrir börnin til að taka með sér heim eftir vel heppnaða heimsókn í safnið.
Síðast en ekki síst má nefna fjölbreytt úrval af skarti, en safnbúðin býður upp á endurgerðir af hálsfestum, hringum, nælum o.fl. sem geymdar eru í safninu. Þar má finna m.a. finna galdrastafi, töfrarúnir og Þórshamar ásamt fleiri eftirgerðum af vinsælum gripum á safninu.
Samstarf við unga hönnuði og listamenn
Til viðbótar við framleiðslu Þjóðminjasafnsins býður Safnbúðin upp á fjölbreytt úrval annarra muna sem tengjast sögu og menningu landsins.Stefna hennar er að styðja við verkefni listamanna og handverksfólks sem vinnur með menningararfinn og dæmi um slíkar vörur eru skegghúfur, skotthúfur, Völuskrín, glösin Fjölskyldan mín, handprjónaðir vettlingar og margt fleira.
Búðin hefur einnig verið í gjöfulu samstarfi við Listaháskóa Íslands en á hverju ári er skólinn með valnámskeið þar sem nemendur vinna að hönnun út frá menningararfinum. Nemendur fá fræðslu og aðstöðu á safninu hanna að lokum vöru eða verkefni sem stundum hefur þótt henta til sölu í Safnbúðinni. Meðal þess sem er fáanlegt er Klakinn, klakamót með lögun Íslands, Kolur, sem er útfærsla á aldagamla lýsislampanum.
Bækur, hljómdiskar og DVD diskar
Safnbúðin leggur upp úr því að viða að sér fágætum perlum íslenskrar bókaútgáfu sem ekki eru algengar á hillum venjulegra bókabúða, t.d. þjóðsögur og vísnabækur fyrir börn og gamlar fræðibækur um handverk og þjóðhætti. Síðast en ekki síst er hér að finna einstakt safn fræðibóka sem tengjast starfssemi safnsins auk allrar þeirrar útgáfu sem Þjóðminjasafnið stendur að, þ.á.m. gamlar og nýjar rannsóknarskýrslur, bækur úr ritröðum safnsins, ljósmyndabækur og sýningarskrár. Hér má nefna sérstaklega Hlutaveltu tímans, vönduð og sérlega eiguleg sýningarbók grunnsýningar Þjóðminjasafnsins. Hljómdiskar eru einnig fáanlegir og eru þar lögð áhersla á þjóðlagatengda tónlist. Einnig eru í boði nokkrir titlar af DVD myndum sem fela í sér fræðslu um menningu og þjóð.
